Lífið

Gerir heimildarmynd um of feit börn á Íslandi

Inga Lind Karlsdóttir hyggst gera heimildarmynd um of feit börn á Íslandi. Fréttablaðið/Daníel
Inga Lind Karlsdóttir hyggst gera heimildarmynd um of feit börn á Íslandi. Fréttablaðið/Daníel
„Þetta er orðið að vandamáli fyrir löngu síðan," segir fyrrum sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdóttir en hún er byrjuð að undirbúa heimildarmynd um of feit börn á Íslandi. Að sögn Ingu er undirbúningur myndarinnar þó skammt á veg komin. „En ef Guð lofar þá gæti þetta gengið, þetta er nokkuð sem mig langar til að gera og ég er byrjuð að vinna í þessu," útskýrir Inga en henni til halds og trausts verður að öllum líkindum Einar Árnarson, tökumaður.

Umræðan um of feit börn hefur orðið háværari undanfarin ár og þá sérstaklega í Bandaríkjunum og Bretlandi. Nýlegar rannsóknir hér á landi benda til þess að vandamálið fari sífellt vaxandi hjá fólkinu sem á að erfa landið og þannig er talið að um fimmtungur íslenskra barna á aldrinum sjö til níu ára sé of þungur. Er þar um kennt of lítilli hreyfingu og óhollum mat en fingrunum hefur þá aðallega verið beint að skólamáltíðunum.

Inga Lind kveðst ekki reiðubúin til að skella skuldinni alfarið á þær. „Ég ætla líka að skoða hvað við erum að gefa börnunum okkar að borða heimafyrir." Hún segir þetta vera stórt mál fyrir allt samfélagið, þetta varði alla. „Og hingað til virðist of lítið hafa verið gert af hálfu hins opinbera, ekki fyrr en nú, að verið er að opna móttöku fyrir of feit börn á barnaspítalanum og ég vonast til að geta fylgt þeirri opnun eftir í myndinni."

Fyrir utan sjónvarpsferil sinn hefur Inga verið dugmikil í opinberri umræðu, hún hlaut meðal annars kosningu til stjórnlagaþingsins en ákvað að þiggja ekki sæti í sjálfu stjórnlagaráðinu og þá hefur hún setið í stjórn Hjallastefnunnar á Íslandi. Hún segir ekkert eitt hafa orðið til þess að hún ákvað að athuga jarðveginn fyrir heimildarmynd eins og þessari.

„Þetta verkefni á barnaspítalanum vakti áhuga minn og mig langar til að gefa fólki tækifæri til að fá að fræðast um vandann. Þetta er bara eitt vandamálið í þjóðfélaginu þar sem við getum gert betur og vonanandi breytt einhverju."

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.