Lindsay horfist í augu við sjálfa sig 27. apríl 2011 11:30 Erfiðir tímar Það hefur tekið sinn tíma fyrir Lohan að ná sér aftur á strik. Hún viðurkenndi í viðtali við Jay Leno að hún hefði gert mikið af mistökum.
Bandaríska leikkonan Lindsay Lohan hefur ákveðið að líta í eigin barm. Hún viðurkenndi í spjallþætti Jay Leno í gærkvöldi að hún hefði gert mörg mistök í lífi sínu. Lohan var nýlega dæmd í fangelsi í fjórða sinn á tiltölulega skömmum tíma og ákvað dómari í Los Angeles að Lohan hefði rofið skilorð sitt frá árinu 2007 þegar hún var handtekin vegna ölvunaraksturs. Dómurinn hljóðar upp á nokkrar vikur í fangelsi og 400 klukkustundir í samfélagsþjónustu. Lohan er grunuð um að hafa stolið hálsmeni frá skartgripahönnuði í Kaliforníu og verður réttað yfir henni í því máli í júní. Lohan sagði við Leno í þætti gærkvöldsins að hún væri ekkert barn lengur. „Ég er 24 ára og hef gert mikið af mistökum og horfist í augu við það. Ég sé hlutina hins vegar í skýrara ljósi núna. Um leið og ég er einbeitt næ ég þeim takmörkum sem ég vil ná.“ Lohan bætir því við að ekki sé alltaf auðvelt að vera í þeirri stöðu sem hún var í. „Þegar maður er á mínum aldri er maður aldrei þakklátur fyrir það sem maður hefur. Þetta er bara ein stór rússíbanareið og aðrir taka allar ákvarðanir fyrir mann.“ Lohan hyggst endurreisa feril sinn og þegar hefur verið staðfest að hún muni leika á móti John Travolta í kvikmynd um John Gotti og Gambino-mafíufjölskylduna illræmdu. Framleiðendurnir hafa þegar lýst því yfir að umræddur dómur muni ekki hafa nein áhrif á kvikmyndina; Lohan muni leika í henni.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Sjá meira