Helgi Björns bókar Hörpuna 9. apríl 2011 14:30 Helgi Björnsson og fleiri stórsöngvarar flytja íslenskar dægurlagaperlur í Hörpu á þjóðhátíðardaginn. Mynd/Spessi
Söngvarinn Helgi Björnsson blæs til stórtónleika Í Hörpunni á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þar munu hann og fjölmargir þekktir tónlistarmenn flytja íslenskar dægurlagaperlur. „Þetta verður æðislega grand,“ segir Helgi Björnsson á línunni frá Berlín. Helgi er búinn að bóka stóra salinn í Hörpunni á þjóðhátíðardaginn og þar ætlar hann að blása til glæsilegra tónleika. „Yfirskrift tónleikanna er Íslenskar dægurperlur og við ætlum að leita víða fanga. Hugmyndin er að taka öll þessi lög sem hafa öðlast sjálfstætt líf, allt frá Brennið þið vitar til Fjöllin hafa vakað,“ segir Helgi. Söngvararnir sem koma fram með Helga eru ekki af verri endanum; Bogomil Font, Eivör Pálsdóttir, Högni Egilsson, Mugison og Ragnheiður Gröndal. Í hljómsveitinni verða trommuleikarinn Einar Valur, Valdi Kolli bassaleikari, gítarleikararnir Ómar Guðjónsson og Stefán Már Magnússon og píanóleikararnir Davíð Þór Jónsson og Kjartan Valdimarsson. Þá stýrir Roland Hartwell tólf manna strengjasveit og karlakór verður sömuleiðis á sviðinu. „Þetta er landsliðið í tónlist,“ segir Helgi kokhraustur. Helgi segir að það sé öllum tónlistarmönnum hollt að leita aftur til upprunans og flytja lögin sem mótuðu þá. „Mér finnst eins og ég sé að loka ákveðnum hring með þessum tónleikum. Ég er búinn að vera að fást við gömlu lögin síðustu 2-3 árin með þessum reiðmannaplötum og svo Magga Eiríks plötunni. Ég hef haft bæði gaman og gott af því að horfa til baka, að skoða hver er grunnurinn undir manni sjálfum sem músíkant. Hvað mótaði mann. Þetta hafa menn líka verið að gera erlendis. Dylan hefur leitað aftur í sinn arf og Robert Plant hefur verið að taka kóver af lögum sem voru rætur hans. Ég hef gaman af þessari pælingu, hvað var okkar blús, hvar eru okkar rætur.“ Aðspurður segir hann ánægjulegt að geta haldið svona tónleika í Hörpunni og ekki sé verra að gera það á þjóðhátíðardaginn. „Það er smá standpína, smá þjóðarstolt. Það er ógeðslega spennandi að flytja allar þessar nostalgíuperlur.“ hdm@frettabladid.is
Mest lesið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Bíó og sjónvarp Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Lífið Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Fleiri fréttir Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Sjá meira