Vitum að dropinn holar steininn 28. maí 2011 15:30 Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty
Í Íslandsdeild Amnesty eru 11 þúsund félagar auk þess sem fleiri taka þátt í aðgerðum og styðja samtökin. „Upphaflega hugsunin í Amnesty var þessi alþjóðlega samstaða, að við gætum haft áhrif á líf fólks og hjálpað fólki þó að við hefðum aldrei séð viðkomandi og byggjum jafnvel í allt öðru landi," segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty. „Við höfum séð gífurlegar breytingar í heiminum. Við búum núna við miklu betra mannréttindakerfi og eftirlitskerfi en þegar samtökin voru stofnuð. Það hafa tugir þúsunda verið leystir úr haldi og fengið lausn sinna mála vegna aðgerða Amnesty. En það eru náttúrulega enn óteljandi verkefni fram undan." Amnesty reynir að vera í takt við tímann. Ný tækni skiptir máli í mannréttindabaráttunni segir Jóhanna, bæði í aðgerðum okkar hér á landi og einnig fyrir fólk sem stendur í ströngu í eigin réttindabaráttu eins og í Miðausturlöndum nú. „Upplýsingarnar sem við fáum frá þessum löndum koma í gegnum símana og netið." Þegar samtökin byrjuðu kom fólk saman og handskrifaði bréf vegna mannréttindamála. Sums staðar er það enn gert en tímarnir hafa þó breyst. „Við byrjuðum með hjálparáköll í gegnum tölvupóst, þar sem félagar fá upplýsingar um þrjú mál og tengil þar sem hægt er að nálgast tilbúið bréf, prenta það út og senda. Þegar við byrjuðum með þetta þá áttu allir borðtölvur og prentara tengda við þær." Í dag sé öldin önnur og fólk er hvar sem er með tölvurnar þegar það fær upplýsingar um nýjar aðgerðir. „Núna í júní opnum við nýja aðgerðasíðu, netákall. Þá fær fólk tilkynninguna, og getur enn prentað út og gert þetta sjálft, en hefur líka möguleika á að skrifa bara undir á netinu. Við sjáum um að koma því áfram." Að auki hefur SMS-aðgerðanet komið sér vel, en þá fær fólk sms með upplýsingum um ákveðin mannréttindamál sem verið er að berjast fyrir. Það sendir skeyti til baka og hefur þar með sett nafn sitt á undirskriftalista. „Félagarnir hjálpa til, hver á sinn hátt. En hver aðgerð skiptir máli. Við vitum það að dropinn holar steininn. Það sem við viljum núna er alþjóðlegt ákall um breytingar. Hver og einn einstaklingur getur haft áhrif og skiptir máli. Við búum ekki á eylandi – okkar velferð tengist því að aðrir njóti líka réttinda."
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira