Skúrkarnir raða sér upp 24. mars 2011 03:00 Verðugir andstæðingar Óskarsverðlaunahafarnir Javier Bardem og Anthony Hopkins hafa báðir verið orðaðir við þrjóta-hlutverkið í næstu James Bond. Og það hefur Ralph Fiennes raunar líka verið. Hopkins er sá eini sem hefur neitað þessu af fullri alvöru en sögusagnirnar í kringum Fiennes og Bardem lifa góðu lífi. Daniel Craig gæti því fengið ansi verðugan andstæðing í 23. myndinni um leyniþjónustumanninn ráðagóða.
Þrátt fyrir að enn sé rúmt ár þangað til 23. myndin um leyniþjónustumanninn James Bond verður frumsýnd eru spekingar og netnirðir farnir að spá í hver fái það bitastæða hlutverk að gera Bond lífið leitt. 23. myndin um James Bond verður gerð. Fyrir ekki svo margt löngu leit allt út fyrir að Bond væri endanlega úr sögunni, kvikmyndaverið MGM var á leið í gjaldþrot og Bond sömuleiðis. En með fjárhagslegri skipulagningu jakkafataklæddra karla tókst að bjarga skipinu og James sömuleiðis og það verður að teljast jákvætt; Bond-mynd er endalaus uppspretta frétta og vangaveltna enda vilja allir vita hver sé næsta Bond-stelpan og hver skúrkurinn. Vitað er að Daniel Craig verður á sínum stað enda þykir honum hafa tekist vel upp í bæði Casino Royal og Quantum of Solace. Sam Mendes mun leikstýra myndinni og myndin verður hugsuð sem sjálfstætt framhald af þeim svaðilförum sem Bond hefur þurft að klóra sig út úr í síðustu tveimur myndum. Og þá má auðvitað bæta því við að Judi Dench verður M. Og þetta eru allt staðfestar fréttir. Hins vegar hefur ekkert verið staðfest hvaða leikkonur hreppa þann eftirsóknarverða titil að verða Bond-stúlka. Það má raunar búast við miklu húllumhæi þegar þær skrifa undir þann ráðningarsamning. Netmiðlar eru lítið farnir að velta möguleikum fyrir sér enda vita þeir kannski sem er að það er til lítils. Nýju Bond-stúlkurnar hafa allar verið fremur óþekktar. Hins vegar grasserar allt í sögusögnum um hvaða karlleikarar komi til greina í hlutverk þrjótsins. Ein lífseigasta sagan er reyndar um leikkonu en á einhverjum tímapunkti fór sú saga hátt að Rachel Weisz myndi leika aðalskúrkinn. Þeirri hugmynd hefur örugglega verið slátrað fljótlega eftir að framleiðendurnir fréttu að Craig og hún væru nýjasta parið í Hollywood. Nýju nöfnin eru svo sem ekkert slor. Óskarsverðlaunahafinn Javier Bardem hefur í marsmánuði verið stöðugt spyrtur við Bond-hlutverkið. Sem er ekkert skrítið. Þeir sem muna eftir frammistöðu hans í No Country for Old Men geta allir kvittað upp á að Bardem myndi sóma sér vel í hlutverki skúrksins. Annað nafn hefur einnig skotið upp kollinum og sá er vanur að leika þrjóta og illmenni. Nefnilega Ralph Fiennes, sá og hinn sami og leikur Voldemort, seiðkarlinn sem gerir Harry Potter lífið leitt. Einn vefmiðill gekk meira að segja svo langt að greina frá því Ralph væri byrjaður að undirbúa sig undir hlutverkið og að hann ætti að vera „dæmigerður enskur þrjótur“. Bæði Bardem og Fiennes eru nefndir til sögunnar á imdb.com-síðu Bond-myndarinnar. Þriðji leikarinn til að vera orðaður við hlutverkið er síðan Anthony Hopkins en á blaðamannafundi fyrir skömmu vísaði hann þeirri hugmynd á bug, hann ætlaði ekki að fara að leika í Bond-mynd. Sem er sorglegt því vissulega hefði verið forvitnilegt að sjá Hannibal Lecter eltast við James Bond.asdfasdf
Mest lesið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Fleiri fréttir „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Sjá meira