Fékk lopapeysu upp á svið frá aldraðri grúppíu 5. mars 2011 12:00 Svavar Knútur í lopapeysu sem hann fékk gefins frá ömmu sem heillaðist upp úr skónum þegar hún sá hann syngja. fréttablaðið/heiða.is „
Viðtökurnar hafa verið yndislegar. Það er rosalega gaman að syngja fyrir eldra fólk,“ segir tónlistarmaðurinn Svavar Knútur. Svavar Knútur gaf út plötuna Amma í fyrra. Á henni flytur hann gamlar perlur sem hann hefur tekið ástfóstri við, en platan er tileinkuð ömmum hans. Svavar hefur fylgt plötunni eftir í félagsmiðstöðvum eldri borgara víða um land og verið vel tekið. „Það er svo mikil æskudýrkun í samfélaginu,“ segir Svavar ákveðinn. „Fólk hangir á að eina fólkið sem eigi að fá tónlist og menningu sé ungt fólk. Það eru hópar af eldri borgurum sem vilja fá tónlist. Það er gaman að teygja sig til þessa hóps sem hefur verið vanræktur af yngri kynslóðinni.“ Svavar segist fá mikið út úr því að spila fyrir eldri borgara og játar að hafa fengið sérstakar gjafir frá grúppíunum. „Það sem er skemmtilegt þegar maður er farinn að njóta ömmuhylli, þá fyllast þær ömmubarnaást,“ segir hann. „Ég hef verið að grínast með að Friðrik Dór fái örugglega G-strengi upp á svið, en ég fæ lopapeysur. Þetta er heill heimur sem ég er að uppgötva – alveg æðislegt fólk, opið og skemmtilegt. Alltaf til í að taka vel á móti manni. Ég held að það hafi allir rosalega gott af því að umgangast eldri borgara.“ Spurður hvort gömlu karlarnir séu afbrýðisamir og gruni hann jafnvel um að einoka kvenhyllina segist Svavar aðeins einu sinni hafa lent í því að hindra gamlan mann. „Það var svolítið viðkvæmt, en endaði vel. Allir voru kátir á eftir,“ segir Svavar léttur. „Annars eru karlarnir hressir. Þeir eru alltaf aðeins færri, enda deyja þeir fyrr. Konurnar eru margar miðað við karlana, þannig að þeir hafa nóg fyrir sig – eru eins og hanar í hænsnakofa.“ Svavar segir að samfélagið sé gegnumsýrt af fordómum gagnvart eldra fólki, en hann segir að ótti fólks við að eldast sé ástæðulaus. „Þetta fólk er ekki síður með lifandi og skemmtilegt tilfinningalíf og er gratt. Það er allt í gangi!“ Svavar áréttar að hann sé ekki hættur að spila fyrir yngra fólk, heldur vilji hann einfaldlega ná til fjölbreyttra hópa. „Eldri borgarar eru hluti af fólkinu sem ég vil syngja fyrir,“ segir hann. „Maður á ekki að vanrækja þá. Það er ótrúlega gaman að mæta til þeirra og syngja.“ Svavar Knútur kemur fram á Akranesi á mánudag og er svo á leiðinni í tónleikaferðalag til Þýskalands og Frakklands. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira