Jógvan krækti í vænan lax í Langá 4. júlí 2011 13:00 Jógvan Hansen vissi nánast ekkert um laxveiði þegar hann kom hingað frá Færeyjum. Hann giftist hins vegar inn í mikla veiðifjölskyldu og getur nú ekki hugsað sér betra frí en að standa úti í miðri á, hlusta á vatnið og veiða lax. „
Þetta tók vel á, ég var orðinn ansi þreyttur í upphandleggsvöðvunum,“ segir Jógvan Hansen söngvari, sem veiddi fimmtán punda lax í Langá á dögunum. Jógvan er á ferð og flugi um landið með Friðriki Ómari um þessar mundir og var staddur í Neskaupstað þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Á dögunum gafst honum hins vegar laus stund til að skella sér í Langána ásamt Arngrími Fannari (Adda Fannari), Hans Hjalta Skaale, frænda sínum frá Færeyjum, og svila sínum. Veiðiferðin var mikil frægðarför því Jógvan krækti í vænan lax, fimmtán pund og 90 cm. Hann var hins vegar ekki rotaður eins og lög gera ráð fyrir heldur settur í ker því meiningin er að nota hann til undaneldis. Þetta er þriðja árið sem Jógvan tekur veiðimennskuna föstum tökum. Hann hefur verið fastagestur í Langá en auk þess veitt í Selá og Veiðivötnum. „Ég er mjög vel giftur, tengdapabbi minn er veiðivörður í Langánni, bræður hans sjá um ána og þeir kynntu mig fyrir þessari íþrótt.“ Söngvarinn kveðst hafa fallið fyrir veiðiskapnum, hann hafi fundið veiðimanninn innra með sér og nú geti hann ekki hugsað sér betra frí. „Úti í ánni ríkir bara ró og friður, þarna er ekkert net og slökkt á öllum símum. Þetta er bara ég að hlusta á vatnið, hin fullkomna afslöppun.“- fgg
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira