Finnur efnivið í skart hér og þar 12. október 2011 16:00 Kristjana Jenný Ingvarsdóttir býr til fylgihluti úr smádóti sem hún finnur hér og þar. Vörurnar nefnir hún Mydesign. Fréttablaðið/Stefán
Kristjana Jenný Ingvarsdóttir útstillingahönnuður hannar og selur fylgihluti og gjafavörur undir nafninu Mydesign. Fylgihlutirnir eru að mestu unnir úr endurunnu efni svo sem stáli, messing, tré og gömlu skarti. Kristjana Jenný hefur framleitt gjafavörur undanfarin þrjú ár en færði sig út í fylgihlutaframleiðslu í janúar á þessu ári er hún var í fæðingarorlofi. „Ég vil frekar kalla þetta fylgihluti en skart því ég tel mig ekki vera skartgripahönnuð, ég er bara að prófa mig áfram með eitthvað sem mér þykir skemmtilegt,“ segir Kristjana. Hún segist hafa fengið fín viðbrögð frá fólki við vörunum og vonast til þess að hún geti haft lifibrauð sitt af þessu í framtíðinni. „Ég er tiltölulega nýbyrjuð og þetta er enn þá bara áhugamál, en vissulega vonar maður að hægt verði að hafa upp úr þessu í framtíðinni. Draumurinn er líka að koma með heimilislínu og barnalínu á næstu árum.“ Kristjana sankar að sér ýmsu dóti til að vinna vörur sínar úr, þar á meðal viði, hnífapörum, gömlum skartgripum og öðru smálegu. „Í sjálfu sér sé ég möguleika í flestu. Ég bjó lengi úti og þá var ég dugleg að þræða markaði og kaupa ýmislegt smádót á þeim. Mínir nánustu vita líka að ég er mikill sankari og hafa verið duglegir að gefa mér hitt og þetta til að moða úr.“ Innt eftir því hvort efniviðurinn og smádótið taki ekki mikið pláss á heimilinu viðurkennir hún það. „Við hjónin búum í áttatíu fermetrum ásamt börnum okkar tveimur. Ég hef lagt undir mig eitt hornið í íbúðinni og ef ég næ að halda skipulagi á því þá þvælist dótið ekki mikið fyrir. Maðurinn minn er voðalega góður og skilningsríkur og hefur aldrei kvartað undan draslinu en börnin eiga það til að fara í það og skoða,“ segir hún að lokum og hlær. Hægt er að skoða vörur Kristjönu á heimasíðu hennar mydesign.is. -sm
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira