Hljómsveitin Ég semur HM-lag fyrir landsliðið 6. janúar 2011 13:00 Róbert Örn Hjálmtýsson í hljómsveitinni Ég hefur samið HM-lag fyrir íslenska landsliðið. Hann á sjálfur „glæstan“ feril að baki í handboltanum með ÍR. Fréttablaðið/Anton „
Ég er búinn að semja lagið og það verður frumflutt í þættinum hans Loga Bergmanns á föstudagskvöldið,“ segir Róbert Örn Hjálmtýsson, forsprakki hljómsveitarinnar Ég. Hann hefur samið nýtt lag fyrir íslenska landsliðið í handbolta sem á að blása strákunum okkar baráttuanda í brjóst þegar þeir leika fyrir hönd þjóðarinnar í Svíþjóð. Róbert segir lagið vera samið af þekkingu um íþróttina en sjálfur á hann „glæstan“ feril að baki í íþróttinni. En fyrst að laginu. Róbert veit ekki hvort það sé hægt að lýsa laginu sem stuðlagi en síðasta lag landsliðsins, Gerum betur, var vissulega stuðlag enda eftir Stuðmanninn Valgeir Guðjónsson. „Lagið er eins og að spila handbolta, það er „aggressívt með mikilli snilld í, gítarsólóum og öðru slíku,“ útskýrir Róbert. Í textanum vildi hann svo ausa úr sínum viskubrunni; það sé til að mynda gott að vippa yfir markmanninn því þá fari hann úr stuði. „Og svo vildi ég útskýra fyrir mönnum hvað samskeytin eru og að vörnin er besta sóknin. Þetta er svona attitjúd-lag um hvernig maður eigi að vinna handboltaleik; að berja á andstæðingnum og vera snjall.“ Róbert á sjálfur leynda fortíð í handboltanum. Hann var liðsmaður feikiöflugs ÍR-liðs í yngri flokkunum sem varð Íslandsmeistari á sínum tíma en þar mátti finna kempur á borð við Sverri Þór Sverrisson, Sveppa, og Ólaf Örn Josephsson, betur þekktan sem Stafrænan Hákon, fyrrverandi landsliðsmanninn Ragnar Óskarsson og núverandi silfurdreng, Ingimund Ingimundarson. „Ingimundur var svona tröllabarn. Og ég spilaði einmitt áramótaleik um daginn á móti honum með ÍR um daginn og þá komst ég að því að hann er ómennskur. Ég er ansi hræddur um að hann sé búinn til inni á einhverri tilraunastofu.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Það er komið gó hjá Bó Lífið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Svala minnist pabba síns Lífið Tekur við af dóttur kærastans Lífið Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Tónlist Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Bíó og sjónvarp Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Lífið Fleiri fréttir Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist