Innlent

Eldur í matsal

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrr í dag vegna elds í loftljósum í matsal að Skúlagötu 19 í Reykjavík en þar er sjúkraþjálfun til húsa. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að allir starfsmenn hafi brugðist rétt við, yfirgefið húsið og hringt á slökkvilið. Töluverður eldur var í rýminu og mikill reykur. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en töluvert tjón er á matsalnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×