Lífið

Bresk hljómsveit rænd á Bakkusi

Rob Yunioshi og félagar skemmtu sér vel á Íslandi þó að ferðin hafi ekki endað sem best.
Rob Yunioshi og félagar skemmtu sér vel á Íslandi þó að ferðin hafi ekki endað sem best.
„Ránið var svo leiðinlegt þar sem það varpaði skugga á annars frábæra ferð til Íslands,“ segir Rob Yunioshi, forsprakki hljómsveitarinnar Yunioshi.

Yunioshi var stödd hér á landi í síðustu viku þegar Iceland Airwaves-hátíðin fór fram í miðborg Reykjavíkur og var hljómsveitin rænd á meðan hún kom fram á skemmtistaðnum Bakkusi. „Sumir hlutirnir sem voru teknir höfðu tilfinningalegt gildi fyrir okkur. Annað þurftum við að nota til að komast heim daginn eftir,“ segir Yunioshi.

Á meðal þess sem var stolið voru vegabréf, myndavél, peningar, símar og krítarkort. „Töskurnar sem geymdu hlutina voru líka í miklum metum hjá okkur,“ segir Yunioshi, en hópnum tókst að komast heim til Bretlands þrátt fyrir vegabréfaleysið. „Ferðin á lögreglustöðina var afar hjálpleg. En þetta gerðist aðfaranótt sunnudags þannig að breska sendiráðið var lokað. Við þurftum því að treysta á lögregluna á Keflavíkurflugvelli, Iceland Express og bresk yfirvöld til að komast heim.“

Yunioshi segir einn í hópnum hafa munað eftir því að ljósrit hafi verið tekið af vegabréfum þeirra á Kex, þar sem þau gistu. Þau fengu afrit af þeim og gátu notað þau til að komast upp í flugvél og heim. „Það hjálpuðu okkur svo margir að komast heim. Svo hefur ein taskan fundist og eitt vegabréf í Reykjavík, þó að peningarnir, sími og myndavél sem voru í töskunni séu ekki þar lengur. Sá sem fann töskuna bauðst til að senda okkur hana, aftur mikil góðmennska. Við týndum kannski fullt af dóti en við munum ávallt eiga góðar minningar eftir tíu frábæra daga með hljómsveitinni Bloodgroup. Við sáum marga fallega staði á Íslandi og hittum æðislegt fólk í Reykjavík.“

- afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.