Eins og fugl í útrýmingarhættu 28. janúar 2011 14:00 í áhaldahúsi garðabæjar Frosti Gringo og goðsögnin Jón Sveinsson í áhaldahúsi Garðabæjar. Heimildarmynd um Jón verður frumsýnd á morgun.fréttablaðið/gva „
Hann er afar sjaldgæf mannvera, eins og fugl í útrýmingarhættu,“ segir Frosti Gringo sem frumsýnir í kvöld heimildarmyndina Enginn meðaljón, sem fjallar um Jón Sveinsson, bæjarstarfsmann í Garðabæ. „Hann er hálfgerð goðsögn í Garðabænum. Hann hefur unnið fyrir bæinn frá því ég var lítill. Hann tínir rusl, en er ekki ruslakarl. Hann labbar um bæinn og hreinsar hann upp,“ útskýrir Frosti, sem lýkur brátt námi sínu við Kvikmyndaskóla Íslands. „Maður tók alltaf eftir því hvað hann var jákvæður og brosmildur, til í að tala við alla og lúmskur heimspekingur, þannig að mig langaði að gera um hann mynd.“ Frosti segir að Jón hafi komið sér á óvart á marga vegu þegar hann byrjaði að taka upp myndina. „Hann er rosalega samúðarfullur og skilningsríkur gagnvart fólki og dýrum. Hann æfði línudans í sex ár og kann best við sig í kúrekafötum. Hann kallar þau sparifötin,“ segir hann. „Þessi mynd er skólaverkefni og ég hafði bara tvo daga til að eyða með honum. Þrátt fyrir það náði ég að gera fína hálftíma mynd úr því.“ Frosti hefur hug á að vinna meira með Jóni og gera um hann heimildarmynd í fullri lengd. Fyrst ætla þeir félagar saman á frumsýninguna í kvöld, sem verður í Bíói Paradís klukkan 20 og er hluti af stuttmyndahátíðinni Reykjavík Shorts & Docs. - fb
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira