Klovn-tvíeykið hneykslar enn 8. október 2011 11:00 Casper Christensen hikaði ekki við að gera grín að samlífi sínu og nýju kærustunnar þrátt fyrir að tengdapabbinn væri í salnum.Fréttablaðið/VAlli
Casper Christensen og Frank Hvam frumsýndu á fimmtudagskvöld nýja uppistandssýningu sína. Klovn-tvíeykið hefur verið duglegt að lýsa því yfir í viðtölum að engum verði hlíft, allt verði látið flakka. Og þeir stóðu svo sannarlega við stóru orðin. Í það minnsta Casper sem talaði digurbarkalega um samlíf sitt og nýju kærustunnar, Isabel Friis-Mikkelsen, og virtist standa á sama um að stúlkan og faðir hennar, Jarlinn, væru meðal gesta í salnum. Jarlinn er reyndar góðvinur þeirra félaga. Fréttablaðið mun ekki hafa eftir þau orð sem Casper viðhafði um líkamlegt samneyti þeirra tveggja en Casper var borubrattur þegar vefútgáfa danska blaðsins BT spurði hann út í brandarann. „Maður verður að vera algjörlega ónæmur þegar maður gerir grín,“ segir Casper og bætti því við að hann hlakkaði til að hitta góðvin sinn Jarlinn. „Við vorum í sambandi fyrir sýninguna og hann óskaði mér góðs gengis.“ Jarlinn virðist hafa haft húmor fyrir groddaralegum athugasemdum Caspers því vel fór á með þeim eftir sýninguna. „Hann veit alveg hvernig þessi leikur er og hann hló sig máttlausan. Hann hefur húmor, sem betur fer.“ Casper var heldur ekki í vafa um að nýja frúin hefði hlegið. „Hún veit alveg hvernig ég er. Ég var heldur ekki að niðurlægja hana, ég nefndi bara nokkrar fallegar hliðar á sambandi okkar.“
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira