Stórskotalið gerir norska Næturvakt 8. október 2011 08:00 Unnið er að endurgerð Næturvaktarinnar í Noregi og framleiðandi hjá TV2 hefur tröllatrú á verkefninu. Einn af handritshöfundum norsku útgáfunnar af Hjá Marteini er í handritateymi þáttanna.
Norska sjónvarpsstöðin TV2 teflir fram öllum sínum stærstu og sterkustu vopnum þegar endurgerð á Næturvaktinni hefst í byrjun næsta árs. Leikstjóri verður Magnus Martens sem þessa dagana er að klára kvikmyndina Arme Riddere eftir bók norska sakamálahöfundarins Jo Nesbø og þrír af vinsælustu gamanleikurum Noregs verða í aðalhlutverkunum að sögn Christophers Haug, eins af aðalframleiðendum leikins efnis hjá TV 2. „Bensínstöðin verður í afskekktu bæjarfélagi einhvers staðar úti á landi,“ segir Haug í samtali við Fréttablaðið. Upphaflega stóð til að norska ríkissjónvarpið, NRK, myndi gera þættina en þau áform duttu upp fyrir og TV2 stökk um borð. Haug bætir því að handrit Næturvaktarinnar verði vissulega lagað að norskum húmor. „Upphaflega handritið var mjög gott en áherslur í norskum og íslenskum húmor eru eilítið öðruvísi þannig að við verðum að breyta einhverju,“ segir Haug sem vildi ekki gefa upp hvaða leikarar kæmu til greina í hlutverkin, sagði það skýrast í nóvember. Leikstjórinn Martens fer fyrir handritateymi þáttaraðarinnar en það verður auk þess skipað þeim Karsten Fullu og Mads Løken. Svo skemmtilega vill til að Fullu skrifaði handrit að nokkrum þáttum norsku útgáfunnar af Hjá Marteini sem RÚV gerði síðar meir sína eigin útgáfu af með Jóhannesi Hauki Jóhannessyni í aðalhlutverki. „Við höfum mikla trú á þessu verkefni og vonum að Norðmenn og Íslendingar eigi eftir að hlæja sig máttlausa. Ég gerði það allavega yfir íslensku útgáfunni.“ - fgg
Mest lesið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Sjá meira