Lífið

Anita sumarleg á rauða dreglinum

Leikkonan Anita Briem fór ekki framhjá ljósmyndurum á frumsýningu Real Steel í Hollywood.nordicphotos/getty
Leikkonan Anita Briem fór ekki framhjá ljósmyndurum á frumsýningu Real Steel í Hollywood.nordicphotos/getty
Íslenska leikkonan Anita Briem heillaði ljósmyndara þegar hún mætti á frumsýningu myndarinnar Real Steel í Hollywood á dögunum. Sumarlega klædd í grænt pils og ljósan topp geislaði Anita en hárgreiðsla hennar vakti athygli enda ekki á hverjum degi sem leikkonur skarta tveimur fléttum á rauða dreglinum. Aníta bar hárgreiðsluna hins vegar með prýði.

Anita ber nú hinn langa titil Anita Briem-Paraskevopoulus eftir að hún gekk að eiga hinn gríska unnusta sinn Dean Paraskevopoulus síðasta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.