Ný norræn tónlistarhátíð 29. janúar 2011 17:15 „
Íslendingar eru svo gegnsósa af bandarískri og breskri tónlist að það er orðið tímabært að kynna fyrir þeim nýja tónlist. Og hvar er þá betra að byrja en í nágrannalöndunum? Þar er alveg heill hellingur í gangi," segir Gunnhildur Gunnarsdóttir, einn af forsvarsmönnum nýrrar tónlistarhátíðar sem hefur verið gefið nafnið Reykjavík-Bergen-Nuuk. Eins og nafngiftin gefur til kynna munu tónlistarmenn frá þessum þremur borgum spila en ráðgert er að hátíðin standi yfir frá 25.-27. febrúar. Heimavöllur hennar verður í nýju leikhúsi úti á Seltjarnarnesi, Norðurpólnum. Gunnhildur, sem er framkvæmdastjóri leikhópsins Vesturports, segir að draumurinn sé auðvitað að þetta verði að árvissum viðburði, tónlistarhátíðin stækki með hverju ári og fleiri norrænar borgir bætist í hópinn. „Við erum með styrk frá Norræna menningarsjóðnum og erum að vona að þetta verði til þess að opna augu fólks fyrir því sem er að gerast í næsta nágrenni við okkur." Sjálf segist Gunnhildur hafa til að mynda verið með efasemdir gagnvart grænlenskum tónlistarmönnum en þegar hún fletti einni hljómsveitinni upp á YouTube komst hún að raun um að áhyggjur hennar voru algjörlega óþarfar. Þetta voru bara hennar eigin fordómar. „Þetta voru bara sætir strákar með húðflúr að spila virkilega flotta rokktónlist." Að sögn Gunnhildar er enn ekki staðfest hvaða íslensku sveitir munu spila en það mun skýrast á næstunni. - fgg
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira