Þrjár konur á ferðalagi 30. nóvember 2011 21:00 Danshöfundur og dansari Dansverkið Á er annað verk Valgerðar. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir verk sitt Eyjaskegg. Fréttablaðið/anton
Dansverkið Á eftir Valgerði Rúnarsdóttur verður frumsýnt í Norðurpólnum annað kvöld. Í því segir frá ferðalagi þriggja kvenna. „Þetta er saga þriggja kvenna á ferðalagi, þær eru ólíkar og hafa mismunandi væntingar til ferðarinnar," segir Valgerður Rúnarsdóttir, dansari og danshöfundur. Annað kvöld verður frumsýnt dansverkið Á eftir hana. Auk Valgerðar dansa með henni í verkinu þær Snædís Lilja Ingadóttir og Unnur Elísabet Gunnarsdóttir. „Eins og er algengt í nútímadansi þá er verkið náið samstarf okkar þriggja þó að hugmyndin sé komin frá mér. Við skoðuðum ferðalagið, hvað ferðalangur skilur eftir á brottfararstað og hvað bíður hans," segir Valgerður sem sjálf hefur verið á miklum ferðalögum undanfarin fjögur ár. En á því tímabili hefur hún verið sjálfstætt starfandi dansari eftir fimm ára feril með Íslenska dansflokknum. „Það var frábær reynsla að vera með Íslenska dansflokknum en Ísland er lítið land og mig var farið að langa að gera eitthvað nýtt," segir Valgerður, sem hefur meðal annars unnið mikið með danshöfundinum Sidi Larbi Cherkaou sem er einn fremsti nútímadanshöfundur Evrópu. „Hann er afar góður listamaður og danshöfundur og frábær manneskja þannig að það hefur verið mjög gaman að vinna með honum. Hann er í fremstu röð danshöfunda í Evrópu og verkefnin eru því afar fjölbreytt." Síðasta verkefni Valgerðar með Cherkaou var danshlutverk í kvikmyndinni Önnu Kareninu. „Það var ný reynsla í reynslubankann, ég hef tekið þátt í kvikmyndaverkefnum áður, en þetta var miklu umsvifameira," segir Valgerður, sem dansar í nokkrum stórum dansatriðum í myndinni. Eftir áramót eru frekari verkefni með Cherkaou á döfinni auk þess sem Valgerður heldur áfram að starfa með Ernu Ómarsdóttur, dansara og danshöfundi. Valgerður segir gaman að spreyta sig í hlutverki danshöfundarins. „Það er töluvert ólíkt að halda utan um allt sjálfur í stað þess að vera að vinna hjá öðrum, en það er gaman að tilbreytingunni." Þess má geta að verkið Á er annað verk Valgerðar sem áður hefur samið verkið Eyjaskegg sem hún hlaut Grímuverðlaun fyrir. Þrjár sýningar verða á verkinu Á, 1. desember, 2. og 4. desember. Sýnt er í Norðurpólnum og hefjast sýningar klukkan átta. Tónlist verksins er í höndum Þorgríms Andra Einarssonar. sigridur@frettabladid.is
Menning Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira