Lífið

Holly geymdi tárin fyrir sjónvarpið

Holly Madison var ekki ánægð þegar hún heyrði af trúlofun Hugh Hefner og Crystal Harris.nordicphotos/getty
Holly Madison var ekki ánægð þegar hún heyrði af trúlofun Hugh Hefner og Crystal Harris.nordicphotos/getty

Fyrrverandi Playboy-kanínan Holly Madison óskaði Hugh Hefner til hamingju með trúlofun sína í raunveruleikaþætti sínum. Madison segist hafa orðið miður sín við fréttirnar og vilja að allur heimurinn vissi hvernig henni liði.

„Þegar ég heyrði fréttirnar ákvað ég að fela tilfinningar mínar, ég vildi segja honum hvernig mér liði í sjónvarpsþættinum mínum. Ég vildi að allir fengju að vita hvernig mér liði,“ sagði Madison, sem hafði sjálf lengi vonast eftir því að ganga í hið heilaga með Hefner. Hann hafði þó ávallt haldið því fram að hann vildi ekki giftast aftur og því eru fréttirnar um trúlofun hans og hinnar 24 ára gömlu Crystal Harris mikið áfall fyrir Madison.

„Þetta var mjög persónulegt fyrir mig,“ sagði Madison í viðtali við tímaritið People.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.