Sannleikurinn sagna bestur 23. október 2011 12:00 Mikið hefur verið slúðrað um hjónaband Ashtons Kutcher og Demi Moore að undanförnu.
Leikarinn Ashton Kutcher vill að sannleikurinn fái að njóta sín í meira mæli í fjölmiðlum. Hann hvetur fólk til að hætta að dreifa slúðri sem er ekki sannleikanum samkvæmt. Leikarinn Ashton Kutcher hefur beðið fjölmiðla um að hafa sannleikann í hávegum í nýju myndbandi sem hann birti á Twitter-síðu sinni. Þar segist Kutcher, sem hefur verið sakaður um að halda framhjá eiginkonu sinni Demi Moore, vonast til að ummæli sín muni leiða til meiri umræðu um sannleika í fjölmiðlum. Leikarinn tók nýlega við hlutverki Charlie Sheen í hinum vinsælu gamanþáttum Two and a Half Men. Hann telur að samskiptasíður á netinu hafi orðið til þess að slúðurfréttum af fræga fólkinu, sem margar hverjar séu skrifaðar af illum hug, hafi fjölgað. „Við erum okkar eigin ritstjórar, útgefendur og prentmiðlar. Þess vegna getur fólk afbakað sannleikann á hvaða hátt sem því hentar og dreift honum út um allan heim. Ein lygi getur ferðast um hálfan hnöttinn áður en nokkur getur sagt sannleikann.“ Hann leggur til að nota skuli fjölmiðla, þar á meðal samskiptasíðurnar, til að auka þekkingu fólks, frekar en að dreifa röngum upplýsingum um aðra. „Efnið sem við búum til fyrir fjölmiðlana og deilum með öðrum þarf að vera búið til á heiðarlegri hátt.“ Kutcher tjáði sig ekkert um ásakanirnar um að hann hafi haldið framhjá með hinni 23 ára Sara Leal. Því hefur verið haldið fram að þau hafi eytt nótt saman 24. september, á brúðkaupsafmæli Kutchers og Moore. Orðrómur um skilnað þeirra fékk byr undir báða vængi á dögunum þegar flutningabíl var lagt fyrir utan heimili þeirra í Santa Monica í Kaliforníu. Kutcher hefur áður hvatt fólk á Twitter-síðunni til að trúa því ekki sem skrifað hefur verið um samband þeirra hjóna.
Mest lesið Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Lífið Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Lífið Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Lífið Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Lífið „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Lífið Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka Lífið Forstjórinn sem fór á atvinnuleysisbætur Áskorun Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Lífið Andrew á Louvre Menning Fleiri fréttir Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Sjá meira