Innlent

Öryrkjar segja ríkisstjórnina ekki geta kennt sig við velferð

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Öryrkjabandalag Íslands skorar á þingmenn að endurskoða fjárlagafrumvarpið. Bent er á að þrátt fyrir verðlagshækkanir og aukna greiðsluþátttöku fólks í lyfja- og lækniskostnaði, sjúkraþjálfun, hjálpartækjum og þess háttar, hefur öllum viðmiðunartölum í félagslega stuðningskerfinu verið haldið óbreyttum frá 2008.

Framkvæmdastjóra samtakanna finnst ríkisstjórnin ekki geta kennt sig við velferð þegar enn er þrengt að öryrkjum.

Áskorunin var samþykkt á aðalfundi Öryrkjabandalagsins í gær. Að mati félagsmanna ber fjárlagafrumvarp fyrir árið 2012 með sér að sá niðurskurður sem hófst árið 2009 verði ekki bættur.

Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, segir félagsmenn áhyggjufulla.

„Já, við höfum bara miklar áhyggjur af því að fólk þarf auðvitað að eiga til hnífs og skeiðar, og þegar bætur almannatrygginga hækka ekki í samræmi við lög þá á fólk erfitt með að greiða það sem það þarf að borga. Og samhliða skertum bótum hefur greiðsluþátttaka sjúklinga í heilbrigðiskerfinu aukist til muna síðustu ár. Það er orðið dýrara að fara til læknis, fara í rannsóknir, fara til dæmis í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun, kaupa sér lyf og hjálpartæki. Við höfum bara áhyggjur af því að fólk hefur ekki efni á þessum hlutum, það verður veikara fyrir vikið og það eykur kostnað, það eykur álag annars staðar í kerfinu," segir Lilja.

Öryrkjabandalagið telur þá ríkisstjórn sem kennir sig við velferð ekki hafa staðið undir nafni.

„Það er mat Öryrkjabandalagsins að hún hefur ekki staðið sig sem skyldi og þrátt fyrir það að rannsóknir sýna það með óyggjandi hætti að aðstæður margra öryrkja er mjög slæm, þá er það okkar mat að þessi ríkisstjórn sem vill kenna sig við velferðarkerfið, að það er bara ekki á rökum reist," segir Lilja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×