Lífið

Oprah Winfrey á hálfsystur

Spjallþáttakonan Oprah Winfrey hefur uppgötvað að hún á hálfsystur. Sú er frá Milwaukee og var ættleidd fyrir tæpum fimmtíu árum, þegar Oprah var átta ára.

Þá bjó Oprah með föður sínum og vissi ekki að móðir hennar hefði verið ófrísk. Oprah kynnti systur sína, Patriciu, í þætti sínum fyrir skömmu og sagði áhorfendum frá þrjósku sinni við leitina að sameiginlegri móður þeirra.

„Þetta er kraftaverk allra kraftaverka," sagði Oprah þegar hún kynnti systur sína fyrir áhorfendum á tilfinningaþrungnu augnabliki.

Hér fyrir ofan má sjá frétt AP-fréttastofunnar um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.