Sýnir aldrei kvikmyndir sínar nema að vera sjálfur í salnum 14. september 2011 22:00 Crispin Glover kemur sjálfur með filmurnar og flytur síðan leikverk og situr fyrir svörum eftir sýningarnar.
Bandaríska stjarnan, költleikarinn og kvikmyndargerðarmaðurinn Crispin Glover verður viðstaddur sýningu á tveimur mynda sinna í Bíó Paradís um helgina. Crispin er vægast sagt óhefðbundin stærð í Hollywood þar sem hann hefur nýtt leikaralaun sín úr stórmyndum til að fjármagna sínar eigin óháðu myndir. Sú fyrsta, What is it?, kom út árið 2005 og er nánast einungis skipuð leikurum með Downs-heilkenni. It is Fine. Everything is Fine! kom síðan út árið 2007. Þær verða báðar sýndar í Bíó Paradís um helgina. Myndum Crispins er ekki dreift í kvikmyndahús samkvæmt reglubundnu dreifingarkerfi. Þær eru ekki heldur gefnar út á DVD eða neinu hliðstæðu formi. Þær eingöngu sýndar í kvikmyndasölum að viðstöddum höfundinum sem ferðast þá sjálfur með filmurnar. Að lokinni sýningu bíður leikstjórinn því alltaf uppá spurningar úr sal og áritar bækur sínar, líkt og í Bíó Paradís um helgina. Hann mun einnig flytja eigið leikverk sem byggir á bókum eftir sig og nefnist Crispin Hellion Glover's Big Slide Show. Crispin varð fyrst þekktur þegar hann fór með hlutverk Georg McFly í fyrstu Back to the Future-myndinni. Hann neitaði síðan að taka þátt í framhaldsmyndinni og vann mál gegn Steven Spielberg, framleiðanda myndanna þegar myndbrot af honum voru notuð í Back to the Future II. Crispin lék einnig í The Doors, Wild at Heart, What's Eating Gilbert Grape?, The People vs. Larry Flint, Charlie's Angels og nú síðast Alice in Wonderland. Nánari upplýsingar um sýningarnar er að finna hér á midi.is og á bioparadis.is.
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira