Gagnrýna að myndatökumenn fari með í húsleitir 29. apríl 2011 07:05
Maður sem lögregla gerði húsleit hjá í fylgd myndatökumanns fréttavefs Morgunblaðsins fyrir skömmu er afar óhress með þá framgöngu lögreglunnar. Í DV í dag segir maðurinn nóg komið af ógæfu í hans lífi. Lagt var hald á nokkuð magn fíkniefna í húsleitinni og segir maðurinn að rangt hafi verið farið með það magn sem fannst í innslagi MBL. Stefán Eiríksson lögreglustjóri í Reykjavík sagði í samtali við fréttastofu að hann sæi ekkert athugavert við að lögregla tæki fréttamenn með sér inn á heimili fólks þar sem gerð væri húsleit. Tilgangur þess væri að gefa innsýn í störf lögreglunnar. Ekki hafi verið óskað eftir heimild dómara fyrir því að hafa fjölmiðil með í för enda þurfi lögreglan þess ekki. Málsmetandi lögmenn sem fréttastofan ræddi við eru algerlega ósammála lögreglustjóranum og segja að um brot á ákvæði stjórnarskrár um friðhelgi heimilisins sé að ræða. Heimild sem dómari gefi lögreglu til að rjúfa friðhelgi heimilisins vegna rökstudds gruns um lögbrot, geti ekki náð til fjölmiðla, enda geti aðkoma þeirra að húsleit aukið á niðurlægingu meints brotamanns og jafnvel virkað honum til sakbendingar áður en rannsókn máls sé lokið.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira