Kalli Berndsen leitar að konum 19. september 2011 10:00 Karl Berndsen hvetur sem flestar konur til skrá sig í nýja þáttinn hans á Stöð 2 en skráning hefst í dag. Hér er hann með Rikku og Þórunni Antoníu. Fré ttablaðið/valli „
Ég er að leita að öllum konum sem eru til í að sjá sjálfar sig í nýju ljósi,“ segir Karl Berndsen, en hann er þessa daga að undirbúa tökur á nýjum þætti. Þátturinn, sem fer í loftið á Stöð 2 í byrjun árs og hefur ekki enn fengið nafn, verður lífsstílsþáttur þar sem Karl gefur konum ráðleggingar varðandi útlitið. Karl lofar flottum þætti en búið er að sérsmíða stúdíó fyrir hann þar sem allar tökur fara fram. Hann segist ætla að taka bæði áhorfendur og konurnar sem til hans koma „hálfa leið til Hollywood“ í þáttunum. „Þetta er rándýrt og allt öðruvísi en það sem ég hef verið að gera. Ég er mjög spenntur yfir að hefjast handa,“ segir Karl og bætir við að hann sé kominn til að vera á sjónvarpsskjánum. „Það er ekki auðvelt og mér líður ekki alltaf vel í sjónvarpi því þetta er mikil vinna og ábyrgð sem fylgir þessu. Ekki bara varalitur og háir hælar. Það er mér samt mikið metnaðarmál að gera konur glæsilegar svo ég læt mig hafa það því ég fæ svo mikið til baka.“ Karl hvetur sem flestar konur til að skrá sig til leiks og segist sjálfur hafa reynslu af því að flestar íslenskar konur fari í svona verkefni með opinn huga og treysti honum. „Ég lýsi bara eftir ósköp venjulegum konum sem vilja fá ráðgjöf um útlit og annað. Ég vil einnig taka það fram að vaxtarlag er algert aukaatriði í mínum huga. Mér finnst allur vöxtur flottur og get unnið með allt,“ segir Karl en skráning í þáttinn hefst í dag á vefsíðunni stod2.is. - áp
Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira