Svíþjóð kallar á Jóhönnu 18. febrúar 2011 09:00 Jóhanna Guðrún og kærastinn hennar, Davíð Sigurgeirsson, hafa sett stefnuna á að flytja til Svíþjóðar í sumar.fréttablaðið/stefán
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og kærastinn hennar, gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson, hafa sett stefnuna á að flytja til Svíþjóðar í sumar. „Ég held að það sé ekki svo vitlaust, bara vinnunnar vegna. Það er svo margt sem er í boði þar,“ segir Jóhanna Guðrún, sem hefur notið mikilla vinsælda í Svíþjóð að undanförnu. Hún segir það einnig vel koma til greina að hún skrái sig í tónlistarskóla þar í landi enda er gott úrval af þeim í Svíþjóð. „Þetta yrði bara fjör. Við erum enn þá ung og höfum tækifæri til að gera þetta núna,“ segir hún. Lagið hennar Nótt, sem tók þátt í úrslitum Eurovision síðasta laugardag, kemur í næstu viku út í enskri útgáfu í Svíþjóð undir nafninu Slow Down. Jóhanna tók það upp á milli jóla og nýárs, á sama tíma og íslenska útgáfan var hljóðrituð. „Það var alltaf meiningin að þetta ætti að koma út á ensku, sama hvernig færi í keppninni. Enska útgáfan er aðalútgáfan ef svo má segja.“ Jóhanna hefur eignast stóran aðdáendahóp í Svíþjóð eftir vinsældir Is it True? þar í landi. Lagið sat til að mynda í 26 vikur samfleytt á lista yfir vinsælustu lögin og er enn mikið spilað í útvarpinu. Til að fylgja eftir nýja laginu, Slow Down, verður Jóhanna mikið í Svíþjóð í næsta mánuði og hefur þegar bókað sig á nokkra tónleika. Slow Down er nýkomið út á iTunes í Evrópu og sat í gær í 36. sæti á sænska iTunes-listanum. Spurð út í vinsældir sínar í Svíþjóð segir Jóhanna: „Menningin þar er rosalega poppuð og svona lög passa vel inn þar,“ segir hún. „Það er bara yndislegt og ég er mjög þakklát fyrir það.“ Söngkonan var gagnrýnd fyrir að hafa tekið því illa að vinna ekki Eurovision-keppnina um síðustu helgi. Hún segir svo alls ekki vera. „Mér finnst mjög leiðinlegt ef fólk misskildi tveggja sekúndna viðbrögð hjá mér. Þetta er bara þegar heilinn er að meðtaka upplýsingarnar sem maður er að fá. Þetta tengist því ekkert að ég hafi verið óánægð með úrslitin eða neitt svoleiðis. Að sjálfsögðu er ég bara mjög sátt með þau enda eru þessir menn allir vinir mínir. Ég samgleðst þeim innilega og veit að þeir eiga eftir að gera mjög flotta hluti úti. Það er mjög leiðinlegt ef fólk leggur manni svona orð í munn,“ segir hún. Aðdáendur Jóhönnu geta fylgst betur með henni á nýrri heimasíðu, Yohannamusic.com, sem var nýlega sett í loftið. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira