Glamúrgellur í kvikmyndaleik 7. maí 2011 13:00 Hildur Líf og Arna Bára Karlsdóttir tóku sig vel útí heita pottinum ásamt þeim Þresti Leó og Steini Ármanni. Fréttablaðið/Valli
Tökur á undirheimakvikmyndinni Svartur á leik eru hafnar. Myndin byggir á samnefndri bók Stefáns Mána um undirheimana í Reykjavík, eiturlyf, handrukkanir og kynlíf. „Mér líst alveg hrikalega vel á þetta, ég er ekki Evrópumethafi í bjartsýni og yfirlýsingum en það sem ég hef séð, heyrt og veit er alveg geggjað,“ segir rithöfundurinn Stefáni Máni. Það hefur verið löng bið hjá honum að sjá bókina færast upp á hvíta tjaldið og þótt hann sé ekki mikið að þvælast fyrir vinnandi fólki hefur forvitnin dregið hann á tökustað öðru hvoru. „Ég á eftir að kíkja nokkrum sinnum, þetta er náttúrlega þvílíkt teymi sem er að vinna að þessu, handritið er að mínum dómi frábært og settið er alveg fullkomið,“ en myndin gerist árið 1999 og því þarf að huga að hverju einasta smáatriði. Egill Gillz og Jóhannes Haukur hafa eilítið stolið senunni í undirbúningi myndarinnar, valið á Agli kom mörgum á óvart og Jóhannes Haukur hefur bætt á sig miklum vöðvamassa fyrir hlutverk Tóta dyravarðar. „Það er búið að raka af honum hárið og hann er með vígalegan hökutopp. Mér skilst að hann elski Tóta dyravörð og sé fastur í karakter, gangi um með djöfullegt glott og glampa í augunum.“ Um Egil viðurkennir Stefán að fyrst hafi þetta komið honum á óvart. „Ég hef ekki heyrt neitt nema gott um þennan strák, hann smellpassar inn í þetta, hann er nautsterkur og það geta ekki allir leikið eftir það sem hann er að gera í myndinni.“ freyrgigja@frettabladid.isBorga karlinn minn, borga, gætu þeir Jóhannes Haukur og Egill Gillz verið að segja.Þorvaldur Davíð hefur nýlokið námi við Juilliard-skólann í New York og er kominn með samning í Los Angeles við þekkta umboðsskrifstofu. Egill Gillz er því í góðum félagsskap og getur leitað ráða hjá Þorvaldi.Þeir eru all svakalegir Egill og Jóhannes Haukur, Egill með svart hár og Jóhannes hefur verið að taka vel á því í ræktinni.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira