Boðið í afmælisveislur Parísar Hilton 18. febrúar 2011 13:00 Lilju Ingibjargar var boðið í afmælisveislur hótelerfingjans Parísar Hilton í New York og Los Angeles. Hún tók námið fram yfir veislurnar. „
Það er freistandi að skella sér, en ég er upptekin í skólanum," segir fyrirsætan Lilja Ingibjargardóttir. Lilju var boðið í afmælisveislu hótelerfingjans Parísar Hilton í New York í gær, en þar fagnaði Hilton 30 ára afmæli sínu ásamt nokkur hundruð nánustu vinum sínum. Hilton lét sér ekki nægja að halda eina veislu, en sú fyrsta var haldin í glæsivillu hennar í Los Angeles í vikunni. Þá hyggst hún halda þriðju veisluna í Las Vegas. En hvernig kom til að París Hilton bauð Lilju í afmælið sitt? „Mér er alltaf boðið í öll skemmtilegustu partíin í New York," segir Lilja í léttum dúr. Lilja kynntist París Hilton í Los Angeles árið 2008 og þær hittust nokkrum sinnum í kjölfarið. Þá var henni meðal annars boðið í partí heim til hennar. „Ég held að þetta sé einhver afmælisvika hjá henni," segir Lilja. „Ef ég ætti nógu mikið af peningum myndi ég líka ferðast um heiminn og halda partí í hverri einustu borg." Lilja fékk boð í veislurnar á Facebook. Fái maður boð í veislu í gegnum síðuna getur maður stundum séð gestalistann, sem er eflaust forvitnilegur hjá Paris Hilton. Lilja ákvað hins vegar að láta gestalistann eiga sig. „Nei, ég var ekkert að skoða hann. En það eru náttúrulega þessar aðalstjörnur sem mæta." Lilja er þó á leiðinni til New York í sumar að hitta vini sína, sem eru á leiðinni í afmælisveisluna. Hvöttu þeir Lilju til að breyta flugmiðanum og skella sér út, en hún tók námið fram yfir afmælisveislu hótelerfingjans. „Það verður nóg af partíum í sumar," segir hún kímin að lokum. - afb
Tengdar fréttir Paris Hilton að verða þrítug og fríkar út í tilefni þess Paris Hilton fagnar stórmerkum áfanga á morgun þegar partýljónið verður þrítugt. Eins og lög gera ráð fyrir hélt hún partý, enda oft gert slíkt af minna tilefni. Teitið var haldið í gær og bauð hún um 300 af sínum nánustu vinum til veislu einhversstaðar í Hollywood. Hún mun hafa eytt mörgum tímum í að gera sig klára fyrir herlegheitin en sá sér þó fært að tilkynna aðdáendum sínum í gegnum Twitter að hana hlakkaði rosalega til. 16. febrúar 2011 19:00 Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira
Paris Hilton að verða þrítug og fríkar út í tilefni þess Paris Hilton fagnar stórmerkum áfanga á morgun þegar partýljónið verður þrítugt. Eins og lög gera ráð fyrir hélt hún partý, enda oft gert slíkt af minna tilefni. Teitið var haldið í gær og bauð hún um 300 af sínum nánustu vinum til veislu einhversstaðar í Hollywood. Hún mun hafa eytt mörgum tímum í að gera sig klára fyrir herlegheitin en sá sér þó fært að tilkynna aðdáendum sínum í gegnum Twitter að hana hlakkaði rosalega til. 16. febrúar 2011 19:00