Hittu sömu aðdáendur og 1984 20. janúar 2011 15:00 Japanskir aðdáendur Mezzoforte voru hæstánægðir með að sjá hljómsveitina aftur. „
Þetta var frábært. Við hittum mikið af fólki sem hafði séð okkur "84 þegar við fórum síðast og það var rosalega hamingjusamt að sjá okkur aftur,“ segir Jóhann Ásmundsson, bassaleikari Mezzoforte. Hljómsveitin er nýkomin heim frá Japan þar sem hún spilaði á sex tónleikum í borgunum Tókýó og Osaka. Þetta voru fyrstu tónleikar Mezzoforte í Japan í 27 ár. Sveitin spilaði í klúbbi sem heitir Billboard Live fyrir framan 300-400 manns í hvert skipti og viðbrögðin voru mjög góð. Eftir hverja tónleika hitti Mezzoforte aðdáendur sína og gaf eiginhandaráritanir. „Maður var hálfhissa yfir móttökunum sem við fengum. Þetta var mjög skemmtileg ferð og ánægjuleg að mörgu leyti en þetta var erfitt varðandi tímamismuninn,“ segir Jóhann en níu klukkustundum munar á Íslandi og Japan. Ferðalagið þangað var langt og strangt, um sólarhringur, og þurftu þeir félagar að millilenda í Kaupmannahöfn og Helsinki á leið sinni til Tókýó. Markaðurinn í Japan er gríðarlega stór og Jóhann vonast til að kveikja áhuga Japana á Mezzoforte enn frekar. „Með auknum áhuga gæti þetta verið mjög góð viðbót við allt annað sem við gerum,“ segir hann og útilokar ekki að koma þangað aftur eftir eitt til tvö ár. Engir tónleikar hafa verið bókaðir með Mezzoforte á næstunni. Þó stendur til að spila hér á landi seinna á árinu. Jóhann segir að stefnt sé að upptökum á nýrri plötu á þessu ári. - fb
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira