Lífið

Tvímælalaust á Stöð 2

Skarphéðinn Guðmundsson skrifar
Jón Gnarr verður með Sigurjóni Kjartanssyni í umræðuþættinum Tvímælalaust á Stöð 2 í kvöld.
Jón Gnarr verður með Sigurjóni Kjartanssyni í umræðuþættinum Tvímælalaust á Stöð 2 í kvöld.

Tvímælalaust er vikulegur umræðuþáttur með þeim Sigurjóni Kjartanssyni og Jóni Gnarr þar sem rætt er á mannamáli, tæpitungulaust og án tvímæla um það sem helst er í fréttum, efst er á baugi og í brennidepli hverju sinni.

Sigurjón stýrir þættinum en Jón Gnarr, gamli félagi hans úr Tvíhöfða, verður fastagestur í þættinum. Þjóðmálin, pólitíkin og stóru málin verða krufin til mergjar með það að leiðarljósi að rýna til gagns, komast að kjarna málsins, kafa dýpra og draga fram í kastljósið sögurnar á bak við fréttirnar. Tvímælalaust er gagnsær og lýðræðislegur fréttaskýringa- og umræðuþáttur sem vílar ekki fyrir sér að spyrja réttu spurninganna á meðan aðrir þegja og krefjast svaranna sem fólkið vill heyra.

Tvímælalaust er á dagskrá á fimmtudagskvöldum kl. 19:20 á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.