Lífið

Sveppi og Auddi teknir á teppið

Sveppi og Auddi voru nokkuð ánægðir með fundinn sem þeir áttu með Umboðsmanni barna. Þeir ætla að taka tillit til ábendinga hans í framtíðinni.
Sveppi og Auddi voru nokkuð ánægðir með fundinn sem þeir áttu með Umboðsmanni barna. Þeir ætla að taka tillit til ábendinga hans í framtíðinni.
„Þetta var bara mjög notalegur fundur og það fór mjög vel á með okkur,“ segir Sverrir Þór Sverrisson sjónvarpsmaður. Sverrir og Auðunn Blöndal funduðu í gærmorgun með Umboðsmanni barna, Margréti Maríu Sigurðardóttur.

Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku skrifaði Umboðsmaður barna bréf á vef sínum í lok desember þar sem hann greindi frá töluverðum fjölda kvartana vegna þáttar þeirra félaga þann 5. nóvember. Þar var leikskóli heimsóttur og sýnt þegar Auðunn Blöndal kúgaðist yfir barnableyjum og kynfærum og hægðum barns brá fyrir. Þá var sjónvarpsþátturinn Ameríski draumurinn einnig gagnrýndur en þar ferðuðust þeir félagar um Ameríku með Vilhelm Antoni Jónssoni og Agli Einarssyni. Einnig höfðu borist kvartanir yfir því að Sverrir Þór stjórnaði barnaþætti fyrir yngstu kynslóðina um helgar en væri þess á milli að gera hluti sem teljast ekkert sérstaklega barnvænir.

Sverrir segir að aðdáendur föstudagsþáttanna þeirra megi ekki búast við neinum gríðarlegum áherslubreytingum í kjölfar fundarins; það sé hins vegar gott fyrir þá að hafa þetta á bak við eyrað. „Það var fínt fyrir okkur að vera dregnir aðeins út úr þessari blöðru okkar, við höldum að við megum allt og að allt sé fyndið. Við erum auðvitað bara með sjónvarpsþátt og stundum er kvartað og stundum hlegið og stundum bæði,“ segir Sverrir. Hann sagðist hins vegar skilja áhyggjur sumra að hann væri að byggja með Villa í morgunsjónvarpinu en hlypi um á tillanum á föstudagskvöldum. „Ég skil þetta sjónarmið mjög vel. En hvað getur maður gert?“- fgg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.