250. tónleikarnir í Chicago 3. febrúar 2011 18:00
Tónleikar Ólafs Arnalds í Chicago um síðustu helgi voru hans 250. á ferlinum. Af þessum 250 tónleikum hafa um 200 verið haldnir síðustu tvö ár, sem kemur ekki á óvart því Ólafur verið óþreytandi við að kynna tónlist sína víða um heim undanfarin misseri. Aðspurður segist Ólafur hafa haft lítinn tíma til að fagna áfanganum. „Við fórum aðeins út og fögnuðum en það var ekkert sérstakt gert á tónleikunum. Við vorum með tvenna tónleika þennan dag þannig að það var lítill tími til að spá í þetta," segir Ólafur, sem hefur verið á ferðalagi um Bandaríkin að undanförnu. Þar hefur hann spilað fyrir framan þrjú til fjögur hundruð manns á hverju kvöldi. Fyrstu tónleikar á ferli Ólafs voru í Listasal Mosfellsbæjar 27. ágúst 2006. Síðan þá hefur hann verið duglegur að skrásetja tónleika sína. „Ég skrifa niður alla tónleika sem ég spila. Einhvern tímann um daginn ákvað ég að byrja að telja þá og fattaði að ég hafði misst af 100. og 200. tónleikunum. Þannig að ég ákvað að byrja að fylgjast með hvenær þeir 250. yrðu." Ólafi eru minnisstæðir tónleikar sem hann hélt í Suður-Kóreu. „Þar var rosagaman að spila," segir hann og ber áhorfendunum vel söguna. „Þeir komu alveg undirbúnir. Þeir voru búnir að prenta húshæðar plaköt með lagatitlum og textum sem þeir hengdu utan á húsið. Þarna stóð „takk fyrir að koma til Kóreu" með smá málfræðivillum. Þeir hafa örugglega notað google-translate og þetta var mjög fyndið." Ólafur hefur gefið út fimm plötur á ferli sínum, nú síðast …and They Have Escaped the Weight of Darkness sem kom út í fyrra. Fram undan hjá honum eru tónleikar í London á mánudaginn og tvennir tónleikar í Istanbúl skömmu síðar. Eftir það kemur hann heim í langþráð tíu daga frí og ætlar að nota tækifærið til að skoða tilboð sem hann hefur fengið um að semja kvikmyndatónlist. Eins og Fréttablaðið greindi frá samdi hann tónlistina við myndina Another Happy Day með Ellen Barkin, Kate Bosworth og Demi Moore í helstu hlutverkum. Hún var frumsýnd á Sundance-hátíðinni á dögunum og hefur fengið mjög góða dóma, meðal annars í hinu virta kvikmyndariti Hollywood Reporter. freyr@frettabladid.is Hér fyrir ofan má sjá myndband sem einn gestanna á 250. tónleikunum í Chicago laumaðist til að taka. Þar flytur Ólafur lagið 3055.
Mest lesið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Furðubandið sem tryllti netið Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Fleiri fréttir Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Sjá meira