Natalie orðin ritstjóri í Berlín 10. nóvember 2011 14:30 Natalie G. Gunnarsdóttir plötusnúður hefur komið sér vel fyrir í Berlín og er tónlistarritstjóri hjá þýska blaðinu Honk-Magazine. Mynd / Anna Marín Schram „
Ég kann mjög vel við mig í Berlín enda suðupottur af alls konar fólki og menningu," segir Natalie G. Gunnarsdóttir plötusnúður, sem nýlega tók við starfi ritstjóra tónlistar hjá þýska blaðinu Honk Magazine. Natalie flutti út í byrjun sumars og getur ekki hugsað sér betri stað til að vera á. En hvernig kom til að hún gerðist ritstjóri tónlistar hjá Honk Magazine? „Berglind Ágústdóttir, vinkona mín hérna úti, benti mér á að blaðið væri að leita að fólki í vinnu. Við vorum tvö að keppast um starfið og þurftum að skrifa eina grein til að sanna okkur," segir Natalie en svo skemmtilega vildi til að verkefni hennar var að taka viðtal við íslensku sveitina Steed Lord. „Hljómsveitarmeðlimirnir eru vinir mínir svo við rúlluðum þessu upp saman og starfið var mitt." Honk Magazine er tónlistarblað sem reynir að fjalla um það ferskasta sem er að gerast í tónlist hverju sinni og koma nýjum og efnilegum listamönnum á framfæri. „Þó að þetta sé þýskt blað þá er það skrifað á ensku, sem betur fer því ég tók bara frönsku í menntaskóla," segir Natalie og bætir við að íslenskir listamenn hafi fengið mikla athygli hjá blaðinu en bæði Jónsi og GusGus eru tilnefnd til tónlistarverðlauna blaðsins. „Ég hvet alla til að kjósa á heimasíðunni honk-mag.com og styðja íslensku listamennina." Natalie hefur samt ekki sagt skilið við plötusnúðastarfið og hefur verið að flakka milli Berlínar og Kaupmannahafnar til að spila á ýmsum stöðum. „Maður verður að sjá til þess að fólk fái að hreyfa á sér rassinn endrum og eins." - áp
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira