Listakona tekur gamla stóla með sér heim af djamminu 10. nóvember 2011 17:00 Elísabet Olka er í skýjunum yfir sinni fyrstu einkasýningu í Kaupmannahöfn en hún sýnir bæði málverk og skúlptúra eða eins konar þrívíddarlist.
Flottir litir Verk úr sýningu Elísabetar en miðjan í verkunum á þessari sýningu er táknið og fígúran, og hugmyndin er að túlka innri átök sem við sköpum okkur sjálf við ýmsar aðstæður. Elísabet Olka myndlistarkona hélt sína fyrstu einkasýningu í Kaupmannahöfn um helgina og vakti mikla athygli. Elísabet hefur verið búsett í Danmörku í fimm ár og segir það auðveldara fyrir listamenn að koma heim og sýna ef þeir hafa þegar fengið viðurkenning ytra. „Það komu miklu fleiri en ég hefði nokkurn tíma trúað og þetta heppnaðist mjög vel,“ segir myndalistarkonan Elísabet Olka, sem opnaði sína fyrstu einkasýningu á Vesturbrú í Kaupmannahöfn um helgina. Elísabet hefur verið búsett í Danmörku ásamt tveimur börnum og manni undanfarin fimm ár. Hún er menntuð frá Listaháskólanum og fór í smíða- og myndlistarkennaranám úti. „Ég lærði smíðakennarann hérna úti en hef verið að sinna myndlistinni síðan ég útskrifaðist og gengið mjög vel. Ég á samt örugglega eftir að nýta mér kennsluréttindin síðar,“ segir Elísabet sem sýnir bæði málverk og skúlptúra eða eins konar þrívíddarmálverk á þessari sýningu. Efniviðinn í listaverkin sín hefur Elísabet fundið á víð og dreif um borgina en í Kaupmannahöfn tíðkast það að setja hluti út á götu sem eigandinn hefur ekki not fyrir lengur. „Ég er alltaf með augun opin fyrir skemmtilegum hlutum sem ég get notað og er þekkt fyrir að draga með mér gamla stóla heim af djamminu. Það er ekki alltaf vinsælt meðal heimilisfólksins,“ segir Elísabet hlæjandi en það er henni hugleikið að koma verðlausum hlutum aftur í umferð og gefa þeim nýtt líf. „Ég var tilbúin með svo mörg verk sem mig langaði að koma frá mér og hef þegar selt fimm verk,“ segir Elísabet en það er ansi gott fyrir ungan listamann á sinni fyrstu sýningu. „Það er þekkt að maður fer ekki að selja nein verk fyrr en kynslóðin sem maður er af fer að eignast peninga og tíma að eyða honum í list, en ég er greinilega að komast á þann aldur.“ Elísabet stefnir á að koma heim með sýninguna á næstunni og viðurkennir að það er auðveldara fyrir listafólk að koma heim og halda sýningu ef það hefur fengið viðurkenningu ytra. „Ég stefni á að koma heim og kynna afraksturinn fyrir Íslendingum í bráð en af einhverjum ástæðum er það auðveldara að sýna heima ef manni hefur gengið vel úti.“ Þeir sem eru staddir í Kaupmannahöfn og vilja berja sýningu Elísabetar augum geta komið við í Vesterbro Showroom VESS á Oehlenschlægersgade 36 næstu tvær vikurnar. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira