Innlent

Kærleiksmaraþon á morgun

Vinavikan hófst á Vopnafirði um síðustu helgi og nær hámarki á morgun.
Vinavikan hófst á Vopnafirði um síðustu helgi og nær hámarki á morgun.
Hin árlega Vinavika á Vopnafirði nær hápunkti á morgun með Kærleiksmaraþoni Æskulýðsfélags Hofsprestakalls. Hátíðahöldin hafa staðið frá síðustu helgi með ýmsum uppákomum undir forystu unglinga í Æskulýðsfélagi kirkjunnar. Markmið vikunnar er að bæjarbúar og gestir sýni sínar bestu hliðar með því að brosa, vera jákvæð og hjálpa öðrum. Kærleiksmaraþoninu lýkur svo með Vinamessu í Vopnafjarðarkirkju þar sem æskulýðsfélagið tekur lagið, og um kvöldið verður flugeldasýning.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×