Innlent

Dagur og Jóhanna sjálfkjörin í formannsembættin

Dagur
Dagur Mynd/Pjetur
Dagur B. Eggertsson, var sjálfkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar, rétt í þessu en þetta tilkynnti hann á Facebook-síðu sinni. Í morgun var Jóhanna Sigurðardóttir, einnig sjálfkjörin í embætti formanns flokksins, á Landsfundi Samfylkingarinnar sem fer nú fram í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í Reykjavík.

Síðar í dag verður kjörið í embætti ritara og hefur Bergvin Oddson og Helga Karlsdóttir boðið sig fram. Landsfundinum lýkur á morgun en þá fara fram kjör í embætti gjaldkera og formanns framkvæmdastjórnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×