Rokkarar skoða fossa, hljóðver og plötubúðir 12. apríl 2011 13:00 Bradford Cox, Moses Archuleta, Lockett Pundt og Josh Fauver lenda á Klakanum á laugardag. Nordicphotos/Getty
Reykjavík Music Mess verður haldin í fyrsta sinn um næstu helgi. Aðalnúmerið er bandaríska rokksveitin Deerhunter. Meðlimir sveitarinnar ætla að taka sér nokkurra daga frí á Íslandi í kringum hátíðina. Planið er að skoða náttúruperlur, hljóðver og grúska í plötubúðum. „Þeir vilja fara í Bláa lónið og sjá Gullfoss og Geysi. Svo reynum við að sýna þeim eitthvað sem er ekki á vitorði allra túrista," segir Baldvin Esra Einarsson tónleikahaldari. Bandaríska hljómsveitin Deerhunter er aðalnúmerið á tónlistarhátíðinni Reykjavík Music Mess sem haldin verður um næstu helgi. Liðsmenn sveitarinnar hafa ákveðið að eyða fjórum dögum hér á landi í kringum hátíðina til að hlaða batteríin. Sveitin er að ljúka mánaðarlöngu tónleikaferðalagi um Evrópu. Baldvin segir að stefnan sé að taka heilan dag í að sýna rokkurunum náttúruperlur hér en þess utan ætla þeir að kynna sér menningu og mannlíf í borginni. „Þeir eru áhugasamir um íslenska tónlist, segjast til dæmis vera hrifnir af Björk og svo múm," segir Baldvin. Ein af óskum meðlima Deerhunter er að fá að skoða íslensk hljóðver.Baldvin Esra Tekur á móti Deerhunter um helgina.Baldvin segist ekki vita hvort forvitnin ein reki Deerhunter-menn áfram eða hvort þeir ætli sér að taka upp efni hér á landi. „Það er aldrei að vita með þessa menn. Ég var að horfa á viðtal við Bradford Cox söngvara þar sem hann sagði að hann semdi lög þannig að tónlistin flæddi bara út úr honum. Svo bara gefur hann út. Þannig gaf hann út fjórar breiðskífur um daginn á heimasíðunni sinni, bara eitthvert efni sem hann hafði gert heima hjá sér. Honum verður mjög tíðrætt um eitthvað sem hann kallar tónlistarlega standpínu. Þess vegna reykir hann ekki né drekkur kaffi, það gæti truflað standpínuna." Bradford þessi Cox virðist annars vera mjög forvitnilegur náungi. Útlit hans vekur jafnan mikla athygli. Hann er hávaxinn en mjög grannur og þjáist af erfðasjúkdómi sem veldur ofvexti í liðamótum. Auk þess að semja tónlist Deerhunter hefur Cox gefið út undir nafninu Atlas Sound. „Hann er mikill pælari og grúskari. Ég geri ráð fyrir að við förum með hann í plötubúðir og leyfum honum að grúska," segir Baldvin. hdm@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira