Lífið

Vill ekki mynd um síðustu daga Ledgers

Michelle Williams og Heath Ledger kynntust við gerð Brokeback Mountain árið 2004. Matilda fæddist í október 2005 en tveimur árum síðar skildu hjónin.
Michelle Williams og Heath Ledger kynntust við gerð Brokeback Mountain árið 2004. Matilda fæddist í október 2005 en tveimur árum síðar skildu hjónin.
Leikkonunni Michelle Williams, ekkju Heaths Ledger, hryllir við áformum um kvikmynd sem mun byggja á síðustu dögum leikarans, sem lést fyrir aldur fram árið 2008. Ledger tók of stóran skammt af eiturlyfjum fyrir slysni, en dauði hans og aðdragandi hlutu gríðarlega mikla athygli fjölmiðla fyrir þremur árum.

Pískrað hefur verið um slíka mynd í Hollywood í þó nokkurn tíma, en nú lítur út fyrir að grænt ljós gæti fengist til að hefja framleiðslu. Þegar Williams frétti af því brást hún öskureið við, enda hefur hún óttast það mjög að myndin yrði að veruleika. Hún lítur á hugmyndina sem ömurlega leið til að græða á hræðilegum atburði, og kvíðir fyrir því að gömul sár rifni upp, var haft eftir heimildarmanni.

Þegar Heath Ledger dó voru þau Williams skilin að skiptum. Þau áttu saman dótturina Matildu sem varð sex ára á þessu ári. Sami heimildarmaður bætti því við að í raun og veru vildi Williams verja dóttur sína við því að vera stöðugt minnt á hvernig faðir hennar lést.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.