Það á enginn einkaleyfi á nafninu Ísfólkið 30. ágúst 2011 14:00 Deilan um Ísfólkið er í hnút. Ragnhildur Steinunn segist hafa gengið úr skugga um að enginn eigi einkaleyfið á Ísfólksnafninu og Ari Matthíasson segir að móðir sín, Ingibjörg Jónsdóttir, hafi gefið þessum bókaflokki fyrst nafn. „
Ég athugaði með einkaleyfið hjá Einkaleyfisstofu og það á enginn einkaleyfið á þessu nafni. Ég var búin að ganga úr skugga um það," segir sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Fréttablaðið greindi frá því á laugardag að Margit Sandemo, höfundur bókanna um Ísfólkið, væri ósátt við nafnið á nýjum sjónvarpsþætti Ragnhildar, Ísfólkið með Ragnhildi Steinunni. Sigrún Halldórsdóttir, útgefandi bókarinnar, sagði að nafnið væri höfundarverk Sandemo og RÚV hefði því ekkert leyfi til að nýta sér þetta heiti. Hefur hún óskað eftir því að þátturinn fái annað nafn. Ingibjörg Jónsdóttir þýddi upprunalegu bækurnar fyrir Prenthúsið á sínum tíma en þær hafa verið endurútgefnar í þýðingu Snjólaugar Bragadóttur. Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins og sonur Ingibjargar, kvaðst í samtali við Fréttablaðið hafa miklar efasemdir um að Sandemo gæti gert tilkall til titilsins Ísfólkið. Það hefði verið móðir hans sem hefði gefið þessum bókaflokki nafn á íslensku. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að þáttur Ragnhildar fái nýtt nafn. Þegar Fréttablaðið náði tali af henni var hún stödd í ísbúðinni Ísfólkið í Spönginni. „Það er auðvitað innihald þáttanna sem skiptir máli og ef við þurfum að breyta nafninu út frá lögfræðilegum eða siðfræðilegum sjónarmiðum gerum við það að sjálfsögðu. Mér finnst það samt svolítið skrýtið að Íslendingar megi ekki nota orð með forskeytinu ís."- fgg
Mest lesið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fleiri fréttir Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Sjá meira