Ekkert stressaður í Eldborginni 30. ágúst 2011 08:00 Geir segir að Kristján Jóhannsson hafi opnað fyrir sér nýjar dyr. fréttablaðið/anton „
Þetta var ótrúlega mikill heiður og frábært að fá að gera þetta fyrir framan húsfylli og finna fyrir þessum hlýleika sem salurinn gaf mér,“ segir Geir Ólafsson. Sinatra-söngvarinn kom mörgum á óvart er hann steig sín fyrstu skref sem tenór og söng lagið Hamraborgin í Eldborgarsal Hörpunnar á laugardagskvöld. „Hamraborgin er mjög erfitt lag. Þú verður að hafa allan líkamann í tóninum á ákveðnum stöðum í laginu. Þú þarft að syngja út og vera með breiðan tón.“ Geir hefur verið í einkatímum hjá Kristjáni Jóhannssyni og er ánægður með samstarfið. „Hann hefur opnað fyrir mér nýjar dyr hvað varðar þetta hljóðfæri. En þetta er mikil vinna og maður þarf að sinna þessu áfram.“ Hann segist ekki hafa verið stressaður að stíga á svið í Hörpunni. „En til að syngja klassískt efni þarftu að vera vera mjög vakandi. Þér leyfist ekkert að fara út fyrir rammann,“ segir Geir. Spurður hvort hann ætli að gefa dægurlögin upp á bátinn fyrir óperutónlistina vill hann ekki vera með neinar yfirlýsingar. „Ég ætla að fara inn á þetta svið, það er á hreinu,“ segir hann og stefnir á að halda nokkra klassíska tónleika í vetur. Geir ætlaði að gefa út óperuplötu með Kristjáni fyrir síðustu jól en ekkert varð af því. „Hún er í undirbúningi. Það er kannski kominn betri tími á að skoða það í dag.“- fb
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira