Grillað partí hjá Óla Geir 30. ágúst 2011 10:00 Óli Geir lofar rosalegu stuði á Ljósanæturballinu sem verður haldið í Stapanum á laugardagskvöld. fréttablaðið/anton
Ljósanæturball Óla Geirs verður hans stærsta til þessa. Í boði verða reykvélar, blöðrur, svaka hljóðkerfi og sjálfur Páll Óskar. „Ég hef haldið mörg stór böll en ég held að það sé óhætt að segja að þetta verði það stærsta," segir tónleikahaldarinn Ólafur Geir Jónsson, betur þekktur sem Óli Geir. Hann ætlar að halda risastórt ball á Ljósanótt í Reykjanesbæ á laugardagskvöld. Það verður í Stapanum og heitir einfaldlega Ljósanæturballið. Páll Óskar, Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur, Haffi Haff og fleiri koma fram, auk þess sem Óli sjálfur þeytir skífum í hliðarsal ásamt Sindra BM. „Þetta verður alvöru. Það er rosa mikill spenningur í Keflavík og það eru allir að tala um að loksins sé eitthvað almennilegt að gerast á Ljósanótt," segir Óli Geir. „Það verður „sikk" hljóðkerfi, eitt það besta á landinu, og nóg af ljósum og reykvélum og blöðrum." Forsala miða fer fram í Gallerí Keflavík og í Skór.is í Kringlunni og Smáralind. Spurður hvort uppákoman verði eitthvað í líkingu við Dirty Night-böllin hans með tilheyrandi undirfatasýningu ungra meyja og annarra djarfra atriða neitar hann því. „Fólk áttar sig ekki á hvað maður hefur haldið mikið af kvöldum fyrir alla aldurshópa. Menn gleypa alltaf það neikvæða. Þetta Dirty Night er bara eitt af tuttugu „konseptum" sem ég er með," segir hann. Óli lofar flottri stemningu, þar sem eldri ballgestir í bland við yngri geti lyft sér upp eftir Ljósanóttina. Skortur hafi verið á stóru balli sem þessu því hingað til hafi fólk eftir miðnætti farið annað hvort í heimapartí eða á skemmtistaði í miðbæ Keflavíkur sem eru smærri í sniðum. „Ég og Palli [Páll Óskar] höfum haldið ball á Ljósanótt síðustu fjögur ár. Við höfum alltaf verið á skemmistöðum niðri í bæ og það hefur alltaf verið alveg grillað. Þannig að okkur langaði að fara með þetta nokkrum skrefum ofar og taka alvöru Nasa-ball eins og hann hefur verið með. Hann hefur aldrei verið með svoleiðis ball í Stapanum og ef það er einhver dagur á árinu til að gera þetta í Keflavík er þetta klárlega dagurinn." Óli Geir hefur haft nóg að gera í sumar í skemmtanahaldinu og ferðast út um allt land með partíin sín. Hann ætlar hvergi að slaka á í haust. „Ég er að fara af stað með Smirnoff-túr í kringum landið. Haffi Haff er með mér í því," segir hann, en þeir félagar ætla að ferðast á tíu staði á landinu og gera allt vitlaust.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira