Mikil vinna framundan - gerðu samning við Liberty 16. febrúar 2011 09:00 Systurnar Rebekka og Katrín Alda Rafnsdætur eru á bak við fatamerkið KALDA. Þær reka einnig saman verslunina Einveru við Laugaveg og hafa nú fengið inni í versluninni Liberty. Fréttablaðið/stefán
Verslunin Liberties í London hefur gert samning við hönnunarmerkið KALDA um sölu á nýrri línu þeirra. Liberty verslunin var stofnuð árið 1875 og var valin besta verslunin í London árið 2010 af Time Out Magazine. Systurnar Rebekka og Katrín Alda Rafnsdætur hanna saman undir heitinun KALDA og reka einnig verslunina Einveru á Laugavegi. Þær voru á meðal þeirra íslensku hönnuða sem tóku þátt í sölusýningunni CPH Vision sem haldin var í tengslum við tískuvikuna í Kaupmannahöfn í byrjun febrúar. Þó nokkrir kaupendur sýndu KALDA áhuga á sýningunni og í kjölfar hennar gerðu systurnar meðal annars samning við Liberty í London. Rebekka segir það mikinn heiður að vera valin inn í verslunina enda sé hún þekkt fyrir að sérvelja aðeins hágæða tískufatnað til sölu. Á meðal þeirra merkja sem fást í versluninni eru Eto, Sonia Rykiel og Vivienne Westwood og bætist KALDA nú í þeirra hóp. „Það er mjög óalgengt að verslunin taki inn unga og óþekkta hönnuði og þetta er kannski sérstaklega skemmtilegt út af því. Það er auðvitað líka ótrúlega skemmtilegt að KALDA verði svo inn á milli allra þessa flottu hönnuða," segir Rebekka. Hún segir samninginn skipta sköpum fyrir merkið og að hann verði vonandi til þess að styrkja það í framtíðinni. „Þetta breytir öllu fyrir okkur. Við verðum bæði sýnilegri auk þess sem þetta mun styrkja okkur sem fatamerki á allan hátt. Samningurinn sem við gerðum núna er um nýjustu línu okkar og svo er það í raun upp á okkur komið að reyna að halda okkur þarna inni," útskýrir Rebekka. Nýja línan ber heitir Rjúfland og lögðu systurnar mikla áherslu á fjölbreytileika og gæði við hönnun hennar og ber línan þess vel merki. Systurnar hyggja á frekari útrás og er Katrín Alda nú stödd í New York þar sem nýja línan verður sýnd á Rendez Vous sölusýnungunni um helgina. „Það er mikil vinna og spennandi tímar framundan hjá okkur," segir Rebekka að lokum glaðlega. -sm
Mest lesið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Aubrey Plaza orðin mamma Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sjá meira