Lífið

Ó já þessi rennislétti magi nærist á avókadó

Miranda Kerr, Þórdís Jóna Sigurðardóttir.
Miranda Kerr, Þórdís Jóna Sigurðardóttir.

Við notuðum tækifærið og spurðum Þórdísi Jónu Sigurðardóttur annan eiganda veitingahússins HaPP hvort hún gæti frætt okkur um innihald lárperu eða avókadó ávaxtarins. Hún var með svarið á reiðum höndum:

„Avókadó er hægt að kalla súperfæði. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að avókadó er svakalega hollt og gerir okkur gott og þetta er sá ávöxtur sem hefur einna mesta næringargildið, það eru miklar trefjar í avókadó, fólinsýra, kalsíum, E vítamín og magnesíum. Þetta eru allt efni sem eru líkama okkar nauðsynleg. Ein rannsókn sýndi fram á að ef avókadó var borðað í sjö daga á hverjum degi lækkaði bæði heildar kólesteról og LDL sem og 11% aukning á góða kolesterólinu HDL. Þá er mikið af fjölómettaðri fitusýru í avókadó sem er svo góð fyrir heilann okkar," svaraði Þórdís.

Ástralska ofurfyrirsætan Miranda Kerr, 27 ára, sem eignaðist sitt fyrsta barn, drenginn Flynn, 6. janúar síðastliðinn, með eiginmanni sínum, breska leikaranum Orlando Bloom, 33 ára, er líka meðvituð um hvað lárperan er holl og góð. Spurð út í mataræðið svaraði Miranda:

„Fyrsta skrefið er að ákveða að borða holla fæðu. Ég reyni að borða lífrænan mat eins oft og mögulegt er því þegar ég geri það verð ég orkumeiri. Ég elska allt sem er grænt eins og spínat, avokadó og helling af brokkolí. Ég er 80% í hollustunni og 20% eftirlát þegar kemur að óhollustu af því ég veit að öfgar eru ekki af hinu góða."

Spurning dagsins á lífinu á Facebook: Hvar annarsstaðar en í rúmi hefur þú elskast?








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.