Íslenskt tónlistarfólk fær meiri pening í kreppunni 8. janúar 2011 11:00 Anna Hildur Hildibrandsdóttir framkvæmdastjóri Útón er ánægð með þær átta milljónir sem Útón hefur fengið úthlutað. Fréttablaðið/Anton
Útón, útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, hefur fengið úthlutað átta milljónum króna í styrk frá fjárlaganefnd fyrir árið 2011. Styrkurinn hefur tvöfaldast síðan í fyrra þegar hann nam fjórum milljónum. „Ég er mjög ánægð með þetta," segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri Útón. Fyrir utan þessa upphæð fær Útón tíu milljónir á ári frá ríkinu samkvæmt samningi á milli Samtóns (samtökum rétthafa íslenskrar tónlistar) og mennta-, utanríkis- og iðnaðarráðuneytanna. „Ég er mjög sátt við að það skyldi vera tekið tillit til þess að við þurfum þennan pening til að geta ýtt þeim verkefnum úr vör sem eru á okkar könnu. Þau eru orðin æði mörg og þarna myndast líka grundvöllur til að við getum skapað fleiri tækifæri," segir Anna Hildur. „Útón hefur verið undirfjármögnuð skrifstofa frá upphafi og þetta þýðir að við getum haldið starfseminni áfram." Anna tekur fram að fastaframlag til annarra kynningarmiðstöðva hafi verið hærra en Útón hafi fengið. Útón hafi því ákveðið að sækja til fjárlaganefndar til að geta meðal annars staðið undir auknu erlendu samstarfi sem skapar um leið tekjur og tækifæri. Þrátt fyrir krepputíma telur Anna það vel réttlætanlegt að Útón fái meiri pening: „Í öllum þessum verkefnum okkar koma minnst þrefaldar tekjur á móti miðað við það sem lagt er í skrifstofuna," segir hún. Stutt er síðan tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fékk í sinn hlut fimm milljónir króna úr ríkissjóði á fjárlögum 2011 og því er ljóst að íslenskt tónlistarfólk getur litið framtíðina bjartari augum en áður. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira