Kammertónlist með sál 15. desember 2011 10:30 besta platan Florence Welch og hljómsveit hennar eiga plötu ársins að mati tímaritsins Q.nordicphotos/getty
Florence and the Machine hefur gefið út plötu ársins að mati tímaritsins Q. Ceremonials fór beint á toppinn í Bretlandi. Hljómsveitin Florence and the Machine á plötu ársins að mati sérfræðinga breska tónlistartímaritsins Q. Hún nefnist Ceremonials og kom út í lok október. Platan fór beint á topp breska breiðskífulistans og fetaði þar með í fótspor forvera síns Lungs sem einnig náði toppsætinu þegar hún kom út árið 2009. Ceremonials náði jafnframt sjötta sætinu á Billboard-listanum í Bandaríkjunum, sem sýnir svart á hvítu vinsældir hljómsveitarinnar beggja vegna Atlantshafsins um þessar mundir. Florence and the Machine er hugarfóstur hinnar 24 ára Florence Welch. Hún ólst upp í Camberwell-hverfinu í suðurhluta London, elst þriggja systkina. Fljótt var ljóst hvert stefndi með hana því ung að aldri söng hún hátt og snjallt með lögum Ninu Simone og Dusty Springfield á heimili sínu. Til að virkja sköpunargáfu sína enn frekar fór Welch í listnám en hætti í skólanum til að einbeita sér að tónlistinni. Hún var uppgötvuð þegar hún var að syngja Motown-slagara drukkin inni á salerni á næturklúbbi. Florence and the Machine vann Brit-gagnrýnendaverðlaunin 2009 sem efnilegasti nýliðinn í Bretlandi og hefur sveitinni heldur betur vaxið ásmegin síðan þá. Frumburðurinn Lungs fékk flottar móttökur og sér í lagi smáskífulagið vinsæla Dog Days Are Over. Tónlist sveitarinnar er einhvers konar blanda af sálar- og indítónlist með sérlega góðri rödd Welch, eins og gestir Iceland Airwaves-hátíðarinnar fengu að kynnast á tónleikum sveitarinnar í Hafnarhúsinu 2008. Sviðsframkoma Welch er einnig sérstaklega lífleg. Gagnrýnendur segja Ceremonials hafa yfir að ráða stærri og fjölbreyttari hljómi en Lungs og eins og svo oft áður er Welch líkt við aðra breska söngkonu, Kate Bush. Sjálf segir Welch plötuna hafa að geyma kammersálartónlist, eða blöndu af sálartónlist og kammerpoppi. freyr@frettabladid.is
Lífið Tónlist Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira