Stórleikur í kvennafótboltanum í kvöld - Valur og Stjarnan mætast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2011 16:45 Mynd/Daníel
Það verður stórleikur í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar Íslandsmeistarar Vals fá Stjörnuna í heimsókn á Vodafonevöllinn að Hlíðarenda. Valur tapaði óvænt tveimur stigum í síðustu umferð en Stjarnan er annað tveggja liða með fullt hús eftir fyrstu tvær umferðirnar. Stjörnuliðið hefur unnið tvo örugga sigra á Fylki (3-0) og Þrótti (4-0) í fyrstu tveimur leikjum sínum og vann auk þess Valskonur tvisvar sinnum á undirbúningstímabilinu, fyrst 3-0 sigur í riðlakeppni Lengjubikarsins og svo 2-1 sigur í sjálfum úrslitaleiknum. Stjarnan var líka eina liðið sem Valskonum tókst ekki að vinna í Pepsi-deild kvenna í fyrrasumar en Valur vann reyndar bikarúrslitaleik liðanna 1-0. Liðin gerðu 1-1 og 2-2 jafntefli í deildarleikjunum þar sem Valskonur skoruðu jöfnunarmarkið í lokin í þeim báðum. Tveir aðrir leikir fara líka fram í deildinni í kvöld. Afturelding og Grindavík mætast á Varmárvelli og á Valbjarnarvelli mætast tvö röndótt Reykjavíkurlið, Þróttur og KR. Allir leikirnir í kvöld hefjast kl. 19:15. Umferðinni lýkur svo á morgun með tveimur leikjum. Á Kópavogsvelli kl. 18:00 taka Blikar á móti ÍBV en Eyjakonur hafa byrjað mótið af krafti, eru með fullt hús og markatöluna 10-0. Á Fylkisvelli kl. 18:30 leika svo Fylkir og Þór/KA.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ótrúleg staða hjá Bayern: Allir markverðirnir meiddir Fótbolti Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Hákon markahæstur hjá Lille í deildinni Fótbolti Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ Enski boltinn „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Enski boltinn Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Åberg spilaði rassinn úr buxunum og Young vann Players Golf Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Sjá meira