Lífið

Duttlungar hermanna

Heimildarmyndin Checkpoint verður sýnd í Reykjavíkurakademíunni í kvöld klukkan átta. Samstarfsmaður leikstjórans, Ron Rotem, mun taka þátt í umræðum að sýningu lokinni en Mannfræðifélagið stendur fyrir sýningunni.

Checkpoint er margverðlaunuð heimildarmynd frá 2003 eftir ísraelska kvikmyndagerðarmanninn Yoav Shamir. Hann er þekktur fyrir heimildarmyndir sínar sem fjalla á ýmsan hátt um stefnu ísraelskra stjórnvalda.

Checkpoint hefur engan raunverulegan söguþráð heldur er myndavélinni stillt upp við mismunandi varðstöðvar í Palestínu og sýnir samskipti ísraelskra hermanna og Palestínumanna.

Hermennirnir stöðva Palestínumenn við varðstöðvarnar og athuga skilríki þeirra. Stundum kemst fólk yfir án vandræða en oft er það látið bíða og jafnvel neitað um að komast yfir, að því er virðist eingöngu vegna duttlunga hermannanna.

Tungumálaerfiðleikar gera ástandið enn verra en fæstir tala tungumál hins hópsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.