Selja föt sín í 500 verslunum um allan heim 21. febrúar 2011 11:00 Gunnar hefur sótt fjöldan allan af sölusýningum það sem af er árinu. Fréttablaðið/Arnþór
Gunnar Hilmarsson, annar eigandi Andersen & Lauth, segir fyrirtækið hafa blásið til sóknar á erlendri grundu undanfarna mánuði. Hann hefur sótt fjölda erlendra sölusýninga það sem af er árinu og segir viðtökurnar hafa verið góðar. Frá því í janúar hefur Andersen & Lauth tekið þátt í sölusýningum og tískuvikum í Berlín, París, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Madríd, Amsterdam og London og að sögn Gunnars er stefnan tekin á tískuvikuna í Mílanó síðar í febrúar. Hann segir fyrirtækið hafa verið í hröðum vexti undanfarna mánuði og sér fram á bjarta tíma. „Við erum búin að vera á fullu upp á síðkastið við að sýna á hinum ýmsu tískuvikum og þetta er búið að ganga mjög vel," segir Gunnar sem var staddur á tískuvikunni í London þegar blaðamaður náði af honum tali.Hönnun Andersen & Lauth.Að hans sögn varð minna um tækifæri innan tískubransans eftir að heimskreppan skall á en að nú sé líf farið að glæðast í hann að nýju. „Við ákváðum að keyra svolítið á þetta núna þar sem kreppan er aðeins farin að hjaðna. Ég reikna með að nýja línan verði seld í um 500 verslunum um allan heim, allt frá Rússlandi til Saudí Arabíu og allt þar á milli. Merkið hefur dafnað vel og við erum auðvitað hrikalega ánægð með það," segir hann. Aðspurður segir Gunnar að síðustu sölusýningunni ljúki um miðjan mars og að þá muni hann hefjast handa við að hanna næstu vorlínu. „Sýningunum lýkur um miðjan mars og þá hefjumst við handa við að teikna vorlínu fyrir árið 2012. Við þurfum helst að klára það fyrir lok marsmánaðar þannig það er aldrei frí í þessum bransa," segir Gunnar að lokum og hlær. -sm
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira