Retro Stefson að semja við útgáfurisann Universal 26. janúar 2011 00:00
Hljómsveitin Retro Stefson er í þann mund að skrifa undir samning við stórfyrirtækið Universal. Viðræður fóru af stað eftir að útsendari fyrirtækisins í Þýskalandi fór á tónleika með hljómsveitinni á Iceland Airwaves-hátíðinni síðasta haust og heillaðist upp úr skónum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eiga liðsmenn Retro Stefson enn eftir að undirrita samninginn en líklegt er að það gangi í gegn á næstu dögum. Hvorki Unnsteinn Manúel Stefánsson úr Retro Stefson né Grímur Atlason, umboðsmaður sveitarinnar og framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, vildu tjá sig um samninginn þegar Fréttablaðið hafði samband við þá. Unnsteinn staðfesti þó að von væri á fréttatilkynningu á næstu dögum. Retro Stefson hefur lengi verið talin ein efnilegasta hljómsveit landsins. Hún hefur gefið út tvær plötur á ferli sínum, nú síðast Kimbabwe sem féll í mjög góðan jarðveg. Hún fékk fjórar stjörnur hér í Fréttablaðinu og lenti í þriðja sæti hjá sérfræðingum blaðsins yfir bestu plötur síðasta árs. Umræddur samningur snýst um útgáfu Kimbabwe á erlendri grundu. Stutt er síðan Retro Stefson spilaði á bransahátíðinni Eurosonic í Hollandi. Í umfjöllun þýskrar heimasíðu tónlistartímaritsins Rolling Stone um hátíðina var minnst á hljómsveitina sem eina af þeim sem væru líklegar til að slá í gegn á næstunni. freyr@frettabladid.is Hér fyrir ofan má sjá myndband við lagið Kimba sem var tekið upp í tengslum við Inspired by Iceland-herferðina síðasta sumar.
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira