Taka jaðaríþróttir úr skugganum 8. nóvember 2011 15:00 „
Okkur fannst fjölmiðlar á Íslandi einfaldlega ekki vera að sinna jaðaríþróttum nógu vel," segir Arnar Guðni Jónsson, einn þriggja framleiðenda á nýjum þáttum sem nefnast Shadez of Reykjavik og fjalla um jaðaríþróttir á Íslandi. Þættina er að finna á vefsíðunni Youtube og nú þegar hafa yfir tvö þúsund manns horft á fyrsta þáttinn sem fór á netið í síðustu viku. Með Arnari standa Elvar Heimisson og Máni Kjartansson að þáttunum en í honum eru, auk umfjallana um jaðarsport, tónlistarmyndbönd, faldar myndavélar, gamanþættir og viðtöl. „Við erum bara venjulegir hjólabrettastrákar sem höfum engan áhuga á fótbolta eða handbolta og langaði að gera þátt sem snerist um aðrar íþróttir með gamansömu ívafi," segir Arnar en þeir félagarnir hafa verið að leika sér við kvikmyndagerð lengi. „Við höfum allir mikinn áhuga á kvikmyndagerð og eigum helling af efni hérna heima í nokkra þætti í viðbót." Arnar segir að jaðarsportið, eins og hjólabretti og snjóbretti, sé mjög vinsælt á Íslandi og er nafnið Shadez of Reykjavik tilvísun í hvernig hjólabrettaiðkun og annað jaðarsport er í skugganum. „Þættirnir eiga að höfða til allra aldurshópa en sérstaklega ungs fólks á framhalds- og háskólaaldri." -áp
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira