Eyðir áramótunum á Íslandi 27. desember 2011 10:00 Hálfíslenska fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Fredrik Ferrier eyðir áramótunum í Reykjavík með fjölskyldu sinni. Nordicphotos/getty „
Mig langaði að komast burt frá brjálæðinu í London í smá tíma og fannst því tilvalið að eyða áramótunum á Íslandi,“ segir hinn hálfíslenski Fredrik Ferrier, en hann er raunveruleikastjarna í Bretlandi. Ferrier, sem á íslenskan föður, ætlar að eyða áramótunum á Íslandi með systur sinni og fjölskyldu hennar sem eru búsett hér á landi. „Ég ætla að njóta mín með fjölskyldunni, skoða næturlífið aðeins og ferðast út á land til að finna náttúruperlur,“ segir Ferrier, en hann varð mikil stjarna í Bretlandi á árinu eftir að raunveruleikaþátturinn Made in Chelsea sló í gegn. „Þátturinn hefur verið svakalega vinsæll og um 1 milljón horfir á hann vikulega. Búið er að samþykkja seríu 3 en hún fer í tökur á næsta ári,“ segir Ferrier og bætir við að hann sé ekki búinn að ákveða hvort hann vilji vera með í næstu seríu og segist vera með fullt af öðrum verkefnum í bígerð. „Ég er að hugsa málið og þarf að ákveða hvaða skref er best að taka næst,“ segir Ferrier, sem er fyrirsæta og tónlistarmaður en hann spilar á fiðlu og gítar. Ferrier ætlar að nýta tímann hér á landi til að kíkja í búðir á Íslandi en hann er mjög hrifinn af skandinavískum fatastíl. „Ég hlakka til að sjá hvað Ísland hefur upp á að bjóða og ætla að kynna mér íslenska hönnun. Systir mín kemur með mér og ég treysti því að hún sé með puttana á púlsinum í þeim efnum.“ - áp
Mest lesið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira